Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 40

Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 40
Náttúrufræðingurinn um sem margir hafa notað síðustu áratugina til að meta lýsingu, t.d. við ljósmyndun, eru nemar með raf- eiginleika sem breytast fyrir áhrif ljóssins og má lesa ljósstyrkinn beint af þeim mælum. Þessi raf- rænu tæki urðu þó ekki algeng fyrr en eftir 1920 eða svo. Þangað til fóru Ijósmælingar einkum þannig fram að með auganu voru bornir saman tveir ljósblettir sem sáust hlið við hlið í kíki. Þeir voru myndaðir af tveim ljósgeislum sem upphaflega voru jafnsterkir en síðan hafði annar dofnað í óþekktu hlutfalli, t.d. við að speglast frá efnisfleti eða ferðast gegnum vökva. Hinn geisl- inn var þá sendur gegnum búnað sem deyfði hann í breytanlegu þekktu hlutfnlli og var það hlutfall lesið af kvarða þegar báðir ljósblett- irnir sýndust jafnbjartir. Deyfibún- aðurinn gat verið af ýmsum toga, svo sem þunnir fleygar af reyklit- uðu gleri eða misbreiðir spaðar sem snerust hratt, en ein útfærslan var sú að láta Ijósið fara gegnum tvö Nicol-prismu hvort á eftir öðru eins og áður var nefnt. Voru þeir ljós- mælar vinsælir og í notkun víða fram yfir 1940.1 sjaldséðari tækjum, sem líktust nokkuð Ijósmælunum en innihéldu kvarsplötur auk Nicol- prismanna, mátti búa til ljós af nán- ast hvaða blendingslit sem var úr hvítu ljósi. Hér verður lýst ýmissi notkun hverrar tækjategundar í líf- og læknisfræðum, á sviðum þar sem færa má rök fyrir því að hún hafi haft bein áhrif til að hraða framför- um. Sú upptalning er engan veginn tæmandi og er aðeins vitnað í eina dæmigerða heimild hverju sinni þótt af mörgum geti verið að taka. Er vísað á fyrrnefnda skýrslu2 varð- andi fleiri atriði og mun ítarlegri heimildaskrá. I þá samantekt vantar þó enn margt, því að upplýsingar um smíði og notkun tækjanna eru dreifðar mjög víða í útgefnum rit- um og seinlegt að leita þeirra. Hafa ber í huga að margar vísindalegar uppgötvanir og tækninýjungar á öðrum fræðasviðum sem urðu til að hluta fyrir atbeina tækja með silfur- bergi í hafa einnig stuðlað að fram- gangi líf- og læknavísinda. POLARIMETRAR 1810-1850 J.B. Biot (2. mynd) hóf rannsóknir á snúningi skautunarstefnu ljóss í kvarskristöllum á árunum 1810-20 og uppgötvaði þá að sumir lífrænir vökvar og vatnslausnir hefðu einnig þann eiginleika. Fann hann meðal annars almenna reglu um það hvernig snúningurinn breyttist með tíðni ljóssins sem notað var. Eftir nokkurt hlé á ljósfræðirann- sóknum sínum birti Biot á árabilinu 1832-60 margar ritsmíðar4 um þau mál. I polarimeter hans bjó gler- spegill til skautað ljós og Nicol-pris- ma greindi sveiflustefnu þess eftir að hafa farið gegnum sýni. Aðrir bættu upp úr 1840 þessi tæki mjög með því að nota einnig Nicol-pris- ma til skautunar. Hafa tækin haldist síðan á svipuðu formi (3. mynd) en ráðstafanir verið gerðar til að auka nákvæmni í aflestri. Einna nytsamastir urðu polari- metrarnir við rannsóknir á sykur- efnum, sem flest hafa optíska virkni. Menn vissu snemma á 19. öld að til væru ýmsar tegundir af þeim, en Biot og aðrir skýrðu margt um eðli þeirra sem enn var óljóst. Algengustu sykurefnunum má skipta í einsykrunga og tví- sykrunga. Af þeim fyrrnefndu eru einna þekktastir glúkósi (þrúgusyk- ur) og frúktósi (ávaxtasykur) með sex kolefnisfrumeindum hvor. Má í ljósi síðari vitneskju telja glúkósa mikilvægustu sameindina í öllu lífríkinu vegna hlutverks hans í orkubúskap fruma. Ef Biot til dæm- is setti sýru út í lausn af súkrósa, þ.e. venjulegum sykri sem er tví- sykrungs-sameind með tólf kolefn- isfrumeindum, breyttust áhrif lausnarinnar á skautað ljós úr því að vera hægri handar snúningur í vinstri handar snúning.5 Var það því nefnt „inversion" og reyndist stafa af klofnun súkrósans í glúkósa og frúktósa. Einnig kannaði Biot á þennan hátt sterkjuefni, sem eru stórar fjölliður einsykrunga. Hlut- verk polarimetranna þar má sjá af nafngiftinni dextrin um vel þekkt 3. mynd. Polarimeter. Einlitt ijós frá vinstri fer gegnum Nicol-prisma og síðan gierrör með vökva (oft 20 eða 40 cm iangt) inni í R. Athugandi horfir í M og notar annað Nicol- prisma tii að mæla snúning skautunarstefnu ijóssins á leið þess. Mynd úr verðlista frá verkstæði C.P. Coerz í Berlín um 1918. - A polarimeter, usedfor measuring the rotation of the plane of poiarization in organic liquids. 40
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.