Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 2008, Page 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags efni sem myndast við niðurbrot sterkjunnar í súrri lausn og veldur miklum hægrisnúningi skautaðs ljóss. Sykurvinnsla úr sykurrófum í Frakklandi hófst í Napóleons- styrjöldunum, þegar innflutningur á reyrsykri frá Karíbahafslöndum stöðvaðist. Margskonar mælingar með polarimetrum'1 hjálpuðu allt frá um 1840 við að bæta þá framleiðslu svo hún stæðist samkeppni við inn- flutta sykurinn. Ummyndun sykurs og sterkju við gerjun var könnuð með sömu aðferðum og hafði það verulega þýðingu fyrir þann iðnað sem á gerjunarferlum byggist. Má þar til dæmis nefna einangrun líf- hvata (ensíms) í fyrsta sinn.7 Margt annað úr náttúrunni (svo sem ber, trjákvoður, mjólk, hunang og sveppir) var einnig rannsakað með polarimetrum og áttu niður- stöðurnar þátt í uppgötvun ýmissa nýrra efnasambanda. Einnig voru könnuð albúmín-efni úr dýraríkinu og mörg beiskjuefni8 (e. alkaloids) á borð við kínín og morfín, sem eru oft mikilvæg sem lyf, ávanaefni eða eitur. Biot o.fl. bentu á gagnsemi mæl- inga á optískri virkni við rannsókn og meðhöndlun á sykursýki þar sem glúkósi skilst út í þvagi.9-10 Voru þær gerðar víða fram yfir 1920 að minnsta kosti og framleidd sérstök afbrigði polarimetranna til nota á lækningastofnunum. A.P. Dubrunfaut uppgötvaði fyrirbrigði11 sem nefna má snún- ingsjafnvægi (e. mutarotation); op- tísk virkni sumra tegunda sykurs og fleiri efna breyttist smátt og smátt fyrst eftir að þau voru leyst upp í vökva eða mynduðust með jefnahvörfum í vökvalausn. Frekari athuganir á fyrirbrigðinu með polarimetrum og öðrum aðferðum í marga áratugi vörpuðu nýju ljósi á framgang efnaferla almennt og á byggingu sykursameinda. Orsök þess er gjarnan sú að sameindir efn- anna geta haft tvennskonar lögun í lausninni, með lítillega mismun- andi orku. ch3 Hinn ungi efnafræðingur L. Pasteur (2. mynd) var að kanna sér- kennilega ljóssnúnings-eiginleika vínsýrusalta, sem Biot og aðrir höfðu tekið eftir, þegar hann áttaði sig á mikilvægu atriði.12 Sum efni gátu kristallast á tvennan hátt þannig að kristallarnir voru eins að útliti en samhverfir á sama hátt og hendur manns (4. mynd a) eða hönd og spegilmynd hennar. Ef önnur gerðin af þessum „hendnu" kristöllum var leyst upp í vökva sneri hún skautunarstefnu ljóss til vinstri, hin á sama hátt til hægri. Þetta var meiriháttar uppgötvun varðandi byggingu kristalla; optíska virknin gafþar til kynna tilvist spegil- samhverfu. Pasteur varð strax þekkt- ur meðal vísindamanna fyrir þessa uppgötvun. 1850-1890 A þeim sviðum sem nefnd voru hér að ofan náðist víða mikill árangur, ch3 svo sem í sykur-, gerjunar- og mat- vælaiðnaði. Gerðu polarimetrar þar meðal annars gagn í gæðaeftirliti og afhjúpun vörusvindls, sem var út- breitt. Vaxandi not urðu jafnframt af polarimetrum við einangrun og greiningu nýrra efna í stórum líf- rænum efnaflokkum. Má þar til dæmis telja beiskjuefnin sem áður voru nefnd13 og O. Wallach hlaut Nóbelsverðlaun 1910 fyrir rann- sóknir sínar frá um 1885 á m.a. terpen-flokki14 kolvetna. Tókst jafn- framt að finna byggingu margra náttúruefna og síðan smíða þau úr öðrum efnum eða frá grunni. Ein af- leiðingin varð sú að ýmiskonar efni sem áður höfðu verið unnin með mikilli fyrirhöfn úr jurtahlutum (svo sem olíur, ilm- og bragðefni og lyf) mátti framleiða úr ódýrari hrá- efnum í verksmiðjum. Meðal þeirra var kamfóra sem síðan varð svo annað tveggja aðalefnanna sem celluloid var búið til úr. Það var 4. mynd a. Spegilsamhverfa kristalla af vínsýru-salti, eins og þeirra sem L. Pasteur rann- sakaði,u b. Mjólkursýrusameind; kolefnisfrumeindin í miðjunni tengist fjórum mismun- andi hópum. Brotna línan á myndinni táknar spegil. Vínsýra er flóknari að því leyti að þar má fá samhverfu af þessu tagi kringum tvær kolefnisfrumeindir. - Examples of mirror-image symmetry in crystals and in molecules. Its relevance to organic chemistry and biology wasfirst noted by L. Pasteur. 41

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.