Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 61
Náttúrufræðingurinn
0 5 10 15 20 25 30 35 40 45 50
Aldur (í árum)
19. mynd. Jafnvel stærstu risaeðlur urðu fullvaxnar á táningsaldri. Til samanburðar eru
sýndar vaxtarkúrfur núlifandi krókódíls og stærsta fornkrókódílsins, Deinosuchus.25
einum 75 til 80 milljón árum, varð
um 10 til 11 metra langur á nærri 50
árum, og er þá stuðst við árhringi í
vexti á hálsbrynju dýranna. Nú-
tímakrókódílar, sem og önnur núlif-
andi skriðdýr (afkomendur Lepido-
sauromorpha og Anapsida á kvísl-
ritinu neðst til hægri á 3. mynd),
halda þessum hæga vexti (19.
mynd). Hins vegar einkennast flug-
eðlurnar af sama vaxtarmáta og
risaeðlurnar. Má því ætla að sam-
eiginlegir forfeður flugeðlna og
risaeðlna, fuglhelsingjarnir, hafi
tekið þennan öra vöxt upp.
Ör efnaskipti eru forsenda hraðs
vaxtar, þótt ágreiningur sé um það
hvort risaeðlur miðlífsaldar hafi
stýrt brunanum í líkamanum á
sama hátt og jafnörugglega og fugl-
ar og spendýr nútímans.
Beinagerð
Ef leggjarbein í skriðdýri, fugli eða
spendýri er sneitt niður og skoðað
í smásjá, sést að leggurinn utan-
verður er úr þéttu beini, en inni í
honum miðjum er beinið frauð-
kennt, fyllt beinmerg. Komið hefur
í ljós að gerð þétta beinsins fer eftir
því hve ört það óx meðan það var
að myndast. Hægt vaxandi bein er
úr þéttum, sammiðja lögum með
dreifðum rásum með æðum og
taugum (lamellar-zonal beinvefur,
20. mynd, neðar). I ört vaxandi
beini mynda sammiðja beinvefjar-
lögin greinar eða fléttur inn á milli
fjölda af æða- og taugarásum og
uppistöðu úr trefjum úr kollagen-
bandvef (fibro-lamellar beinvefur,
ofar á 20. mynd). Leggjarbein í
spendýrum og fuglum eru að
mestu leyti af fléttuðu gerðinni,
enda mynduð við hraðan vöxt. A
hinn bóginn eru leggir krókódíla
og annarra nútímaskriðdýra með
sammiðja lögum, í samræmi við
hægari vöxt þessara dýra.
I þunnsneiðum af steingerðum
leggjum úr risaeðlum má í smásjá
greina fléttaða skipan beinvefjarins,
sem kemur heim við það sem menn
vita nú um öran vöxt þessara dýra
(20. mynd, smásjárljósmyndin
lengst til hægri).
Á 21. mynd er nokkrum forfeðr-
um og frændum fuglanna skipað í
tímaröð. Flokkunarröðin efst á
myndinni (frá Archosauria til Aves)
ARCH0SAURIA
DIN0SAURIA
Þéttur, lagskiptur beinvefur
(lamellar-zonal) með fáum
æðarásum; hægur vöxtur
r»n h^pn nfnAckÍnH
Fléttaður beinvefur
(fibro-lamellar) með
þéttum æðarásum; ör
vöxtur og hröð efnasklpti
Minni líkami,
styttri vaxtartími
Færri æðarás1
dæmigert fyri'
minni dýr
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
20. mynd. í efri röð er sýnd vefjagerðin í ört vaxandi beini (lengst t.v.) og smásjármyndir af þunnsneiðum slíkra beina í hirti, strút og
risaeðlu. í neðri röðinni er sýnd vefjagerð hægt vaxandi beins og smásjármynd afbeini krókódíls sem dæmi.25
er samkvæmt reglum uppruna-
flokkunarfræðinnar.
Neðst á myndinni eru nokkur orð
um beinagerðina. Eins og þegar er
komið fram, eru krókódílarnir einir
með þéttan beinvef úr sammiðja
lögum með dreifðum æðum, en öll
hin dýrin á myndinni eru með æða-
ríkari, fléttaðan beinvef. Greina má
lítilsháttar breytingar í gerð bein-
anna með tímanum (sjá skýringar
við lóðréttu örvarnar neðst á mynd-
inni), en aðalbreytingin er á vaxtar-
tímanum. Allir núlifandi fuglar, þar
með stærstu strútar, verða fullvaxn-
ir minna en ársgamlir, flestir á mun
skemmri tíma - spörinn (lengst til
hægri á myndinni) á aðeins einni
viku.
0RNITH0TH0RACES
0RNITHURAE
lchthyornis
35 sm
Hesperornis
Í.?S m
Patagopteryx
50 sm
Enantiornithes
15 sm
Þéttari æðarásir
benda til örari vaxtar
21. mynd. Áa- og frændgarður fugla, tneð skýringum á breytingum á gerð beinvefjar (neðst). Ekki erfjallað
hér um allar pessar skepnur.25 61