Náttúrufræðingurinn - 1996, Side 18
„Jeanfrœndi áfleka áfrönsku stöðuvatni".
2. Hvað gerðirðu í gær?
I gær vaknaði ég snemma, drakk kaffið í
rúminu, nokkur símtöl. Að því loknu fór ég
að hitta fuglana mína. Um hádegið kom
kona og tók viðtal. Aftur símtöl. Hitti
mann. Snögg moussaka (ekki slæm) á
grískum skyndibitastað. Aftur símtöl. Um
kvöldið skrifaði ég hluta af bókinni minni
sem verður um leiki sem einn, tveir eða
ileiri geta tekið þátt í. Ekki þarf neitt til að
leika þessa leiki. Þeir eru algerlega hug-
lægir. Rétt áður en ég sofnaði byrjaði ég að
lesa „Even Cowgirls get the blues“ eftir
Tont Robbins. Ég veit ekki enn hvað mér
fínnst um hana.
3. Hvaða stærð af skóm
NOTARÐU?
42, stöku sinnum 41.
4. Ertu hræddur við að fljúga?
Og hvað með svima eða loft-
HRÆÐSLU?
Ekki svo mjög. Það gerist stundum þegar
vélin kastast til eða lendir í ókyrrð. Ég er
aðallega hræddur við lendinguna. Ég efast
alltaf um að þessi litlu hjól ráði við þung-
ann af vélinni. Og lofthræðslan er svona í
meðallagi mundi ég segja.
5. Hvernig ER SAMBAND ÞITT VIÐ
FORELDRA ÞÍNA?
Gott, þótt mér finnist foreldrar mínir oft
svolitlar nöldurskjóður, gamaldags, leiðin-
leg og lítt hvetjandi. Það sem mér þykir
vænst um er að þau virðast hafa trú á mér
þrátt fyrir að þau skilji í raun ekki hvað ég
er að gera. Þau hafa alla tíð verið mjög góð
við mig. Stundum finnst mér út í hött að
vera með þeim þegar á það er litið að þau
bjuggu mig til og að ég mundi ekki
endilega sækjast eftir félagsskap þeirra ef
þau hefðu ekki gert það, svo ég taki nú ekki
dýpra í árinni. Á hinn bóginn finnst mér
þau stundum vera eina fólkið fyrir utan
bróður minn sem ég hef ástæðu til að
umgangast.
6. Ertu ánægður með líf þitt?
Já, það er ég. Ég nálgast svarið við þessari
spurningu út frá gagnsemi. Þegar ég hugsa
16