Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 50
Á NÆSTUNNI
V - ; ■: ■.V-'UV-tfi ' - -W'’ /
Nokkw fjöldi greina bíður nú birtingar
í Náttúrufrœðingnum og það er liðin
tíð, a.m.k. í bili, að útgáfan tefjist
vegna skorts á aðsendu efid. I fram-
haldi af breyttum áherslum í efnisvali
berst tímaritinu nú sífellt meira af
alþýðlegu efiti. Helst er hörgull á
stuttum pistlum en þeim fjölgar þó
stöðugt. Hér er tœpt á efni nokkurra
þeirra greina sem birtast munu í nœstu
heftum.
Af Etnugosi 1991-1993
Þýskur jarðfræðingur, Richard H. Kölbl,
segir frá tilraunum hers og almannavarna á
Italíu til að breyta rennsli hraunár sem
stefndi á bæinn Saffarena í Etnuhlíðum
árið 1992.
Erfðafræði Lysenkos
Torfim D. Lysenko notfærði sér pólitískt
ástand í Sovétríkjunum á valdatíma Stalíns
og varð svo valdamikill að erfðafræði-
kenningar hans voru gerðar að flokkslínu.
Örnólfur Thorlacius rekur sögu loddara
og falsspámanns sem sveift einskis í
valdafíkn sinni.
Haförninn
Kristinn Haukur Skarphéðinsson skrifar
um íslenska hafarnarstofninn, hvernig
honum var nærri því útrýmt um síðustu
aldamót og vöxt hans og viðgang á 20. öld.
Birting þessarar greinar hefur dregist
nokkuð af óviðráðanlegum ástæðum.
Kúfiskur við Island
Guðrún G. Þórarinsdóttir og Sólmundur
Einarsson segja frá niðurstöðum tilrauna-
veiða á kúfiski sem gerðar voru á vegum
Hafrannsóknastofnunar sumarið 1994.
VlSTTEMPRUN
Björn Sigurbjörnsson ráðuneytisstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu og fyrrverandi
forstjóri Joint FAO/IAEA division of nu-
clear techniques in food and aggriculture í
Vín í Austurríki fjallar um baráttu við
flugnaplágur í Afríku og Mið-Ameríku
sem eytt var með því að fylla sýkt land-
svæði með yfirgnæfandi fjölda flugna sem
gerðar höfðu verið ófrjóar með röntgen-
eða gammageislun.
Straumsvíkurhefti
í undirbúningi er sérstakt hefti um náttúru-
far í næsta nágrenni álversins f Straumsvík
og er það unnið í samstarfi við Islenska
álfélagið. Þar ntun Gunnar Ólafsson fjalla
um Ástjörn, Haukur Jóhannesson og
Sigmundur Einarsson fjalla um hraunin,
Freysteinn Sigurðsson fjallar um grunn-
vatnið, Hörður Kristinsson fjallar um
gróðurinn, Agnar Ingólfsson og Jörundur
Svavarsson tjalla um lífið í sjó og vötnum
og Þór Tómasson fjallar um loftmengun.
Af öðru efni sem bíður birtingar má nefna
aðra grein Ágústs Guðmundssonar um
berghlaup og urðarjökla, Kristinn Haukur
Skarphéðinsson Ijallar um æðarfuglinn,
Erling Ólafsson og Gunnlaugur Pétursson
fjalla um skrfkjur í greinaflokknum um
íslenska flækingsfugla, Örnólfur Thor-
lacius skrifar um notkun hrossa í hernaði
og Guðrún G. Þórarinsdóttir og Þórunn
Þórðardóttir fjalla um eitraðan þörunga-
blóma.
48