Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 30

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 30
I október 1867, meðan Helland var enn- þá við nám, var hann ráðinn aðstoðar- maður (amanuensis) við Metallurgisk Laboratorium, eina af rannsóknastofum háskólans. Frá 1870 fékk hann svo styrki frá háskólanum til jarðfræðirannsókna. Hann reyndist mjög glöggur vísindamaður og auk þess sérlega fjölhæfur og afkasta- mikill. Ur penna hans runnu þegar á árun- um 1871-73 greinar í stríðum straumi um aðskiljanleg svið jarðfræðinnar, oft með ályktunum sem brutu í bága við fyrri kenn- ingar. Sannaðist nú orðtakið að enginn er spámaður í sínu föðurlandi og urðu niður- stöður Hellands gjarna mjög umdeildar. Honum var m.a. neitað um inngöngu í Kristiania Videnskabsselskab 1873 og hann fékk ekki inni með greinar sínar í ritum háskólans og öðrum virtustu fræði- tímaritum Noregs er leið á það ár. Hefðu slíkar móttökur getað bugað aðra unga vísindamenn. Helland brá sér þá til Stokkhólms og fékk heilar átta greinar birtar hjá Sænska vísindafélaginu og Jarðfræðafélaginu þar 1874-75, einkum um ísöldina í Noregi (t.d. Helland 1874). Þóttu Svíum greinarnar svo góðar að hann var strax í maí 1874 kjörinn erlendur með- limur í síðarnefnda félaginu. Urðu landar Hellands því að endurskoða hug sinn gagnvart honum, og frá haustinu það ár var hann gerður að „universitetsstipendiat“ við Kristjaníuháskóla. A árunum kringum 1875 áttu norrænir jarðfræðingar mikinn þátt í stórstígum framförum í skilningi manna á eðli ís- aldarinnar og menjum um hana í Evrópu (sjá v. Zittel 1901, bls. 231-234; Högbom 1923). Þar má ekki síst nefna Th. Kjerulf og O. Torell, sem báðir höfðu heimsótt Island. Boðuðu þær rannsóknir endalok kenninga sem lengi höfðu verið vinsælar, um að grettistök, rispur á bergi og önnur augljós merki ísaldarinnar stöfuðu af stórflóðum eða hafís. Helland hóf um þetta leyti að ferðast til annarra landa, jafnframt öllum þeim rann- sóknum er hann stóð að heima í Noregi. Árið 1875 heimsótti hann Grænland og vöktu athuganir hans á hinum stóru skrið- jöklum V-Grænlands (Helland 1876) mikla athygli. Hann fór um Bæjaraland og Italíu 1876, lærði um smásjárathuganir á bergi í Leipzig veturinn 1876-77 og kann- aði málmnámur í Freiberg, Harzfjöllum og Cornwall 1877. Hann hlýddi á fyrirlestra í École des Mines í París 1878 og ferðaðist þá enn víða um Evrópu (sjá Helland 1879a). Til Orkneyja, Hjaltlands og Færeyja fór hann 1879, íslands 1881 og um Italíu og Grikkland 1883. Frá öllum ferðum hans komu stórmerkar greinar um það sem hann sá: skriðjökla, eldfjöll, landmótun, námugröft o.fl. Eftir mikinn styr í norska þinginu var stofnuð sérstök prófessorsstaða í námu- greftri við Kristjaníuháskóla handa Hell- and frá haustinu 1885. Jafnframt kennslu vann hann áfram að jarðfræðirannsóknum innanlands, og áhugi hans beindist meir að hagnýtum hliðum jarðfræðinnar, t.d. gagn- vart landbúnaði, skógarhöggi, iðnaði og námuvinnslu. Hann fór til ótal eyja að bora eftir neysluvatni, tókst að bjarga silfur- námunum á Kongsberg frá því að verða lagðar niður og vann að verkinu „Jord- bunden i Norge“, sem er fyrsta tilraun til jarðfræðirits fyrir landbúnaðinn þar. Sam- tímis birti hann mikinn Ijölda blaðagreina um hin óskyldustu málefni, svo sem stjórnmál, trúmál, menntun, söguleg efni, fornleifagröft og jafnréttisbaráttu kvenna. Greinar Hellands eru vel skrifaðar og sóttust ritstjórar blaða mjög eftir skrifum hans. Mest birtust ljórar greinar eftir hann sama daginn í Dagbladet! Frá 1890 vann Helland auk kennslunnar einkum að athugunum á lögfræðilegum þáttum námuvinnslu (bergrett). Reit hann kennslubækur og ljölda blaðagreina um það efni. Árið 1897 tók hann svo að sér að ritstýra verkinu „Norges land og folk“. Næstu 20 ár sá hann um útgáfu á lýsingum fylkja landsins (sem þá hétu ömt) í þessu ritsafni, auk borganna Kristjaníu og Berg- en. Hver lýsing var í 2-4 bindum og bindin allt að 1400 bls. hvert. Þetta verk er mikill minnisvarði um alhliða þekkingu Hellands á landi sínu og um vinnusemi hans. 28

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.