Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 23

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 23
2. mynd. Pétur Ásbjörnsson býr sig undir að síga ofan í gufuaugað á Hofsjökli (18. mars 1994). -A mountaineer getting readyfor abseil into the steam vent in the Hosfjökull ice cap (March 1994). MyndJphoto Ari Trausti Guðmundsson. 1988) gæti ísinn á umræddum slóðum verið um 150 nr þykkur eða meira. Undir eru austurhlíðar eldfjallsins, nokkuð brattar. Þar utan í hefur verið jarðhitasvæði án þess að gufa frá því hafi náð til yfirborðs jökuls- ins eða þá að jarðhitasvæði hefur nýlega orðið þarna til. Hvort sem er hlýtur jarð- hitinn að ná að bræða hvelfingu í ísinn. Fyrir skömmu hel'ur svo breytl ísrennsli og/eða nýtt sprungumynstur orðið til þess að rifa hefur opnast á þak hennar og hleypt upp gufu. ísinn er vart svo þunnur að sprungan nái til botns í jöklinum. Jökul- sprungur verða afar sjaldan nema 30-50 metra djúpar. Ef um gamalt jarðhitasvæði er að ræða, hefur tilviljun ráðið því að gufurásir hafa ekki opnast eða uppgötvast áður. Ef jarð- hitasvæðið er nýtt eða er að sækja í sig veðrið nrá vel vera að gufan eða fleiri upp- streymisrásir verði æ meira áberandi á þessunr stað, með lilheyrandi sigsvæðum. Breytingar geta orðið á jarðhitasvæðum í megineldstöðvum án þess að jarðeldur sé að taka þar fjörkipp. Urn sögu eldstöðvar- innar hofsjöklsku er ekkert vitað og skal ekki fjölyrt um jarðhitann frekar. Heimildir Helgi Björnson 1988. Hydrology of Ice Caps in Volcanic Regions. Vísindafélag íslendinga. Rit 45. 139 bls. auk kortaöskju. Helgi Björnsson 1990. Hofsjökull: landslag, ísforði og valnasvæði. Náttúrufræðingurinn 60. 113-126. SllMMARY A large volcanic centre with a caldera is located within the Hofsjökull ice cap in Central lce- land. No signs of geothermal activity have been found within the ice cap. In March 1994, how- ever, it was confirmed that an open crevasse close to the summil region emitted steanr with a faint srnell ol' sulphur. PÚSTEANG HÖFUNDAR /AuTHOR'SADDRESS Ari Trausti Guðmundsson Flétturima 4 IS-112 Reykjavík lceland 21

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.