Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 31

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 31
Líf Ainunds Hellands var athafnasamt og fjölbreytilegt. Hann þótti afar góður kennari og laginn við að vekja áhuga nem- enda sinna á faginu. Hann var sannleiksleitandi og ódeigur talsmaður réttlætis og heiðar- leika í öllu sínu fari. Hann varð þekktur persónuleiki á götum Kristjaníu og átti stóran vinahóp. Helland lést 16. nóv. 1918, 72 ára að aldri, ókvæntur og barn- laus. ■ FERÐ HELLANDS TIL ÍSLANDS 1. mynd. Amund Helland. Málverk eftir Erik Weren- skiold 1885. Ljósm. Kristján P. Kristjánsson 1993. I bréfum frá Amund Helland til Þorvaldar Thoroddsens, sem varðveitt eru í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn (Ny Kgl. Saml. 3007, utilg. 128-4to), sést að hann hefur fengið áhuga á íslandsferð 1879 eða fyrr. Gaf Þorvaldur honum ýmsar ráðlegg- ingar varðandi ferðina og jarð- fræði landsins. Helland kom með sænsku llutningaskipi til Seyðisfjarðar snemma sumars 1881 og tafðist þar í tvær vikur. Hann var þó ekki iðjulaus fremur en fyrri daginn heldur viðaði að sér efni í frásögn af síldveiðum Norðmanna hér (Helland 1882—83a). Hann hélt svo til Mývatns með Gísla pósti Eiríkssyni, og segir frá þeirri ferð í annarri grein (Helland 1882—83b). Þar dvaldist hann nokkra daga og kynnti sér eldstöðvar (Helland 1882—83d). Hann hafði áhuga á Öskjugosinu 1875 vegna þess að aska þaðan hafði fallið í Noregi og Svíþjóð, en ekki gafst ráðrúm til að fara inn í Öskju. Helland (1882-83c) skrifaði þó samantekt um Öskju- og Sveinagjárgosin eftir ýms- um heimildum. Frá Mývatni var riðið suður Sprengi- sand, sem Helland telur hafa verið fáfarinn á þessum árum (Helland 1882—83e). Var áætlað að halda í átt til Skaftafellssýslu af hálendinu, en eftir nokkra hrakninga og villur kom Helland til byggða á Galtalæk við Heklu. Hann nefnir að Þórisvatn sé í raun mun stærra en sýnt er á uppdrætti Björns Gunnlaugssonar. Eftir ferð að Geysi skrapp Helland til Reykjavíkur og sendi þaðan fréttabréf um ferðir sínar og ýmislegt sein fyrir augu hafði borið (Helland 1881). Að áeggjan Þorvaldar Thoroddsens (sjá Minningabók Þ.Th. II, bls. 88) lá svo leiðin austur að upptökum Skaftáreldahrauns, sem enn varð Helland tilefni til gagnmerkra skrifa (Helland 1885, 1886; Jón Jónsson 1994) þótt Thoroddsen kalli þau „flausturslega samin“. Byggjast þau skrif bæði á eigin athugunum hans og á eldri íslenskum ritum um eldana og Móðuharðindin. Úti í heimi voru fræðimenn uin þetta leyti að vakna til vitundar um að eldgos yrðu ekki bara á stökum gígunt heldur gæti stundum gosið á sprungum. Lét Helland gera kort eftir mælingum sínum á Lakagígum, sem fylgdi fyrrnefndu riti og vakti athygli. Fer 29

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.