Náttúrufræðingurinn - 1996, Síða 28
Athyglisverð skordýr;
Kampaskotta
ERLING ÓLAFSSON
síðasta pistli mínum í þessum greina-
flokki var farið nokkrum almennum
orðum um skottur og flokkun þeirra.
I framhaldi af því var síðan tjallað
um nýjan landnema af ættbálki
kögurskotta (Thysanura), þ.e. ylskottu
Thermobia domestica (Packard, 1987).
Af ættbálki stökkskotta (Archaeognatha)
hefur aðeins ein tegund fundist hér á landi
enn sem komið er. Þó eru þekktar um 250
tegundir í heiminum. Islenska tegundin,
Petrobius brevistylis Carpenter, 1913,
hefur gengið undir heitinu kampafló frá
því að Bjarni Sæmundsson fann hana fyrst
í Grindavík fyrir um sex áratugum síðan.
Kampur merkir m.a. maiarhryggur við sjó,
sjávarkambur (sbr. Islensk orðsifjabók), en
á slíkum stöðum er tegundina einkuin að
finna. Hún stekkur líkt og fló og er hug-
mynd Bjarna að heitinu þannig til komin.
Þar sem ég tel mjög mikilvægt að
samræmi sé viðhaft við nafngiftir kýs ég
að breyta heitinu þannig að tegundin verði
framvegis kölluð kampaskotta en ekki
kampafló. Tegundin er auk þess mjög
fjarskyld hinum eiginlegu flóm og er því
óviðeigandi að hún beri heiti þeirra.
Kampaskottan hefur mér vitanlega fund-
ist í öllum Norðurlöndunum, með strönd-
um Noregs allt til 70°N, í Færeyjum,
Þýskalandi og á Bretlandseyjum. Hún
hefur fundist nokkuð víða hér á landi, frá
Rauðasandi á Barðaströnd og suður og
austur um, allt til Seyðisfjarðar. A Norður-
landi hefur hún aðeins fundist við Akur-
eyri. Kjörlendi hennar eru klettafjörur og
grýttir fjörukambar ofan við sjávarmörk.
Erling Ólafsson (f. 1949) lauk B.S.-prófi í líffræði
frá Háskóla Islands 1972 og doktorsprófi í skor-
dýrafræði frá Háskólanum í Lundi 1991. Erling hefur
starfað við dýrafræðirannsóknir hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands frá 1978.
26
Hún leynist í sprungum og holum í berg-
inu og er talin lifa á þörungum.
Það er athyglisvert að kampaskotta
hefur fundist á nokkrum stöðum á
Suðausturlandi fjarri sjó. Geir Gígja fann
hana vfða í Hornafirði sumarið 1932, frá
Klifatanga við Skarðsfjörð, allt að
Kráksgili sem er langt inni í landi, um 2
km norðvestur frá Hoffelli. Á þessu svæði
héldu kampaskottur sig í skriðum við
rætur fjallanna. Framan í Bergárdalsheiði
fann Geir skotturnar allt neðan frá láglendi
og upp undir heiðarbrún. Þá eru
kampaskottur algengar í Salthöfða í
Öræfum en hann er um 2,5 km frá sjó. Vist
kampaskottanna á þessum slóðum fjarri
sjó hefur verið skýrð á þann hátt að þar séu
fornar sjávarstrendur. Land reis síðan úr
sæ í lok ísaldar og skotturnar urðu
innlyksa.
Mér er kunnugt um eitt tilfelli þar sem
kampaskottur fundust innanhúss, þ.e. í
Sundhöll Hafnarfjarðar, sem er staðsett
rétt við sjávarkambinn.
Kampaskotta Petrobius brevistylis
Carpenter í Salthöfða í Örœfum 14. júní
1994. Hún er mjög samlit gráum,
fléttuvöxnum klettaveggnum. Bolurinn er
um 1,5 cm auk skotta og fálmara, gráleitur
með Ijósum flikrum. Hún er snör í
snúningum og fljót að hverfa verði hún fyrir
styggð. Ljósm. Erling Ólafsson.
Náttúrufræðingurinn 66 (1), bls. 26, 1996.