Náttúrufræðingurinn - 1996, Page 39
Jarðskjálfta-
BELTIÐ Á SUÐURLANDI
FREYSTEINN SIGMUNDSSON
OG PÁLL EINARSSON
JARÐSKORPUHREYFINGAR 1986-1992
ÁKVARÐAÐAR MEÐ GPS-LANDMÆLINGUM
Hér á íslandi skýtur Mið-Atlantshafshryggurinn kryppunni upp úr sjónum og eru
gosbelti landsins því óvefengjanlega liluti af hryggjakerfi úthafanna. Fljótlega eftir
að endurbœttar hugmyndir um rek meginlanda urðu almennt viðurkenndar á 7.
áratugnum varð vísindamönnum Ijóst að jarðskjálftabeltið á Suðurlandi tengist
landrekinu. Sveitirnar í Flóanum virðast vera á hægri hreyfingu til austurs meðan
uppsveitir Árnessýslu hreyfast til vesturs. Einfaldast er að gera ráð fyrir að eitt
sniðgengi með austur-vestur stefiui liggi á milli svœðanna og skjálftar verði er það
hrekkur til. Sú er ekki raunin. Skjálftasprungur á Suðurlandi eru dreifðar á breiðu
belti milli þessara svœða og snúa auk þess norður-suður, eða nœr hornrétt á þá
stefnu sem einfaldast er að gera ráð fyrir. Til skamms tíma voru þessar hreyfingar
ekki mælanlegar vegna þess hve hægar þær eru en tœknibylting í landmælingum
hefur nú opnað vísindamönnum nýjar leiðir í rannsóknum.
Plötuskil Norður-Ameríkuplötunnar'
og Evrasíuplötunnar liggja um ís-
land og markast af gliðnunar- og
---- jarðskjálftabeltum landsins. Plötu-
hreyfingar teygja og aflaga jarðskorpuna á
plötuskilunum og aflögunina má mæla
með endurteknum nákvæmum landmæl-
Freysteinn Sigmundsson (f. 1966) lauk M.S.-prófi í
jarðeðlisfræði frá Háskóla íslands 1990. Hann lauk
Ph.D.-prófi í sömu grein frá University of Colorado at
Boulder í Bandaríkjunum 1992 og hefur síðan verið
sérfræðingur hjá Norrænu eldfjallastöðinni.
Páll Einarsson (f. 1947) lauk fyrrihlutaprófi í eðlis-
fræði frá Háskólanum í Göttingen í Þýskalandi 1970.
Hann stundaði síðan framhaldsnám í jarðeðlisfræði
við Colombia University í New York í Bandaríkj-
unum og lauk þaðan Ph.D.-prófi 1975. Páll var sér-
fræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans 1975-
1994 er hann varð prófessor í jarðeðlisfræði við
Háskóla Islands.
ingum. Á seinasta áratug hafa komið til
sögunnar nýjar landmælingaaðferðir sem
gera kleift að mæla jarðskorpuhreyfingar
með meiri nákvæmni en áður. Handhæg-
asta og ódýrasta aðferðin byggist á GPS-
leiðsögukerfinu (Global Positioning Sys-
tem). GPS-kerfið grundvallast á 24 gervi-
tunglum á braut umhverfis jörðina í um
20.000 km hæð sem senda frá sér merki
sem nota má til að ákvarða staðsetningu
mælipunkta á jörðu niðri. GPS-leiðsögu-
'Uin þá heimsmynd jarðfræðinnar sem nú er almennt
viðurkennd og nefnd hefur verið plale tectonics á
ensku kjósa höfundar að nota orðið plötukenning á
íslensku en hún hefur einnig verið nefnd flekakenn-
ing. Til samræmis eru hinar stóru einingar jarðskorp-
unnar nefndar plötur (e. plates) en þær eru nefndar
flekar þegar orðið flekakenning er notað. Ekki er
eining meðal jarðvísindamanna um notkun þessara
orða.
Náttúrufræðingurinn 66 (1), bls. 37^t6, 1996.
37