Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 11
3. mynd. Vídd (width) og lóðrétt færsla (throw) á Almannagjá. — Width and throw of
Almannagjá, measured from north to south.
að kortleggja sprungurnar. Flestar
víddarmælingar á Almannagjá og
Hrafnagjá voru gerðar eftir loftmynd-
um í mælikvarða 1:13000 og 1:8500, en
að auki var víddin mæld á nokkrum
stöðum úti í náttúrunni. Áætluð
skekkjumörk í mælingu á vídd og lóð-
réttri færslu eru 10% en 2° fyrir stefnu
sprungna.
MÆLINIÐURSTÖÐUR
Stefna
Meðalstefna sprungnanna er
N30°A, og er þá átt við línulega stefnu
milli sprunguenda. Einstakar sprungur
eru hlykkjóttar og víkja sums staðar
talsvert frá meðalstefnu. Dæmi um
slíkt er Gildruholtsgjá (2. mynd) sem
er stórt misgengi á austurhluta Þing-
vallasvæðisins. Gildruholtsgjá liggur í
áberandi sveig þar sem misgengið um
hana er mest, en þrátt fyrir það er
línuleg stefna milli endanna áþekk
meðalstefnu sprungna á svæðinu.
Flestar sprungur á svæðinu víkja þó
lítið frá meðalstefnu.
Lengd
Lengd sprungna er ávallt háð túlkun
þar sem þær eru yfirleitt ósamfelldar
(sundurslitnar) og klofnar. í þessari
grein hefur sú aðferð verið notuð að
telja senr eina sprungu togsprungu eða
misgengi sem rekja má óslitið á loft-
myndum í mælikvarða 1:33300. Þessi
kvarði var valinn til að auðvelda sam-
anburð við sprunguþyrpinguna við
Voga (Ágúst Guðmundson 1980) og
til að útiloka smásprungur og stuðla-
sprungur sem sjást á loftmyndum í
stærri mælikvarða.
Meðallengd þeirrar 101 sprungu
sem mæld var er 620 m. Stysta sprung-
an mældist 57 m en sú lengsta 7,7 km
5