Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 26
1. mynd. Útbreiðsla landsela hér við land, samkvæmt talningu úr lofti í ágúst 1980. 1
Faxaflói, 2 Breiðafjörður, 3 Vestfirðir, 4 Strandir-Skagafjörður, 5 Eyjafjörður-pistilfjörður,
6 Austfirðir og 7 suðurströndin. — Distribution of common seals at the coast of lceland in
August 1980.
Auk talninga úr lofti var til sam-
anburðar talið á nokkrum stöðum á
landi, nánar tiltekið í Markarfljótsós, í
Hindisvík, í Grundarfirði og á Voga-
skerjum í Isafirði. Við talningu á landi
var notaður sjónauki á þrífæti er
stækkar 25 sinnum. Fylgst var með
fjölda sela á fyrirfrant ákveðnu svæði
um það leyti er flugtalning fór fram.
Við úrvinnslu talningargagna er
ströndinni skipt í sjö hluta (1-7 á 1.
mynd) og fjöldi sela tekinn saman fyrir
hvert svæði.
Talningargildi eru leiðrétt með eftir-
farandi þáttum:
a) Stuðli, sem er til kominn vegna
þess að reynslan hefur sýnt, að jafnan
er það einhver hluti dýra sem talning-
armönnum yfirsést. Hér er stærð þessa
stuðuls sett fram sem 1,05 (95% örygg-
ismörk 1,03—1,07) eða sú hin sama og
við talningu útselskópa (Sjá Erling
Hauksson 1985a).
b) Stuðli, sem tekur til greina þann
hluta sela sem ekki er á þurru á þeint
tíma þegar talið er miðað við sjávar-
föll. Samkvæmt könnun er gerð var
sumurin 1980 og 1981 eru flestir selir
að jafnaði á þurru u. þ. b. hálfri klst.
eftir háfjöru, en færri á öðrum tímum,
en fæstir selir eru á þurru á háflóði
(Erlingur Hauksson 1985b). Út frá
20