Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1986, Side 30

Náttúrufræðingurinn - 1986, Side 30
ingu og kópauppeldi væri lokið og kópum hefði fækkað nokkuð, vegna náttúrulegra affalla og veiða. NIÐURSTÖÐUR Útbreiðsla og fjöldi landsela við ströndina Flestir landselir sáust við suður- ströndina, en Faxaflói og svæðið Strandir-Húnaflói-Skagafjörður (svæði 4, 1. mynd) fylgir fast á eftir. Hvað leiðrétta talningu snertir, eru flestir selir á svæði 4. Kemur þetta til af því, að talning fór fram á frekar óheppilegum tíma með tilliti til sjávar- falla og sá hluti dýra er sást úr lofti hefur verið lítill af þeim sökum. í heild sáust um 15 þús. landselir úr lofti, leiðréttur fjöldi er um 21 þúsund með 16—27 þús. sem efri og neðri mörk fjöidamatsins (tafla 2). Landselur er umhverfis land allt. Algengastur er hann í jökulsárósum sunnanlands, en einnig í skerjum, í eyjum og árósum við Vestur- og Norðurland. Sjaldgæfastur er hann við Norðausturland (1. mynd). Stærstu landselslátrin eru samkvæmt þessari könnun í Fjallsárós í Öræfum (rúml. 1 þúsund dýr) og víða annars staðar eru stór látur, t. d. í Leirárvogi, Akraósi, á Löngufjörum og í Hvalseyjum á Faxaflóa, í Hergilseyjarlöndum, Skál- eyjum, Hvallátrum, Akureyjum, Rauðseyjum, Reykhólalöndum, Skarðslöndum, Bæjarvaðli á Rauða- sandi og mörgum fleiri stöðum við Breiðafjörð (2. mynd). í ísafjarðardjúpi, Reykjafirði, Drangavík, Ófeigsfirði o. fl. stöðum á Ströndum, Kollafirði, Bitrufirði, Hrútáfirði, á Vatnsnesi og Skaga við Húnaflóa. Við Norðaust- urland eru stærstu látrin í Bakkahlaupi og Jökulsá á Brú. Við Suðausturland eru stærstu látrin í Álftafirði og Lóns- vík. Fyrir utan Fjallsárós eru stór látur við suðurströndina í Þjórsá, í Ölfusá, Markarfljóti, Kúðafljóti (3. mynd), á Skeiðarársandi og víðar. Samanburður á talningum á Iandi og úr lofti í öllum tilvikum fékkst hærri sela- fjöldi við talningu úr flugvél og á loft- ljósmyndum en við talningu úr fylgsn- um á landi á sama svæði (tafla 3). Þessi munur er mestur þar sem fjarlægð í talningarsvæði frá landi er mest og yfirsýn lítil (Vogasker). Þar sem yfir- sýn er góð og fjarlægðin tiltölulega stutt eru niðurstöðurnar sambærilegri. ÁLYKTANIR Útbreiðsla landsela við ströndina Landselur er algengur umhverfis land allt, en er misdreifður (tafla 2, 1. mynd). Þeir þættir, sem þessu út- breiðslumynstri ráða eru ekki þekktir nákvæmlega, en eftirfarandi aðstæður skipta líklega máli: (a) Fjöldi heppi- legra látra. (b) Manna- og húsdýra- umferð. (c) Fæðuskilyrði. (d) Fjöldi útsela. (e) Veiðar. Samkvæmt erlendum rannsóknum á landsel, virðist fjöldi heppilegra látra ráða miklu um selafjölda á strand- svæðum (Boulva og McLaren 1979). Staðhættir á kæpingarstöðum landsela eru í megin atriðum tvenns konar. Um er að ræða sandeyrar eða sandfjörur, sem erfitt er fyrir landdýr að komast til og sker og smáeyjar, sem ekki er vætt út í. Jafnan er það djúpt í kringum þessi sker og eyjar, að dýrin geta synt í kringum þau. Við suðurströndina eru mörg látur af fyrri gerðinni og þar er þorri allra landsela á sandeyrum í jökulsárósum og á sandfjörum fjarri byggð. í Faxaflóa eru látursgerðirnar blandaðri, þar eru bæði sandeyrar og 24

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.