Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 32
 3. mynd. Landselir á sandeyri við Kúðafljót, séð úr flugvél. - Common seals hauled out on sandbank in the river Kúðafljót, on the south-coast of Iceland, as seen from the air (\jósm.Iphoto Guðmundur S. Jónsson). um, og útselir og landselir liggja sjald- an hlið við hlið á sama stað. í þeim tilvikum sem útselir og landselir hafa sést deila um pláss á skeri eða í fjör- unni er það jafnan landselurinn sem forðar sér í sjóinn. Hef ég nokkrum sinnum orðið vitni að slíkum atburð- um. Það er og mál selveiðibænda, að þar sem útselurinn nái bólfestu hrekist landselurinn í burtu og þannig geti útselurinn spillt kæpingarstöðum land- sela (Kristinn Jónsson, bóndi á Skarði, persl. uppl.). Miklar staðbundnar veiðar geta leitt til fækkunar sela samanborið við önn- ur svæði þar sem veiðar eru engar eða mun minni. Landselir eru hópdýr og leggja líklega þá fyrst undir sig nýjan kæpingarstað, að of þröngt er orðið á þeim stöðum sem fyrir eru. Þegar selir eru fáir má búast við því að út- breiðslan verði takmarkaðri, en þegar selastofnarnir eru stórir. Einnig eru dæmi þess að dýrin forðist þá staði, þar sem veitt hefur verið með skot- vopnum um kæpingartímann og haldi annað. Hér á landi virðist þetta eiga einna helst við kæpingarstaðina á skerjum og eyjum. Vorkópaveiðar voru stundaðar ár eftir ár með skot- vopnum í sumum árósum á Suður- landi, án þess að kæping minnkaði þar. Veiðar vorkópa í net á kæpingar- stöðum virðast ekki hafa þau áhrif að selirnir fælist staðina, heldur sýnir reynslan að urturnar kæpa ár eftir ár á sömu stöðum, þrátt fyrir að kópurinn sé tekinn frá þeim á hverju ári. 26

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.