Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 50
1. mynd: Norðvesturhluti Vatnajökuls og nágrenni. Tenntu línurnar afmarka öskjur megineldstöðva. Trölladyngja er stór hraundyngja frá nútíma, en Kistufell er móbergs- stapi. Hamarinn er líklega megineldstöð með öskju. Veiðivatnagoskerfið nær inn undir jökulinn, en eldstöðvar á Dyngjuhálsi ná alveg að jökuljaðri NA við Bárðarbungu. Mest er um eldstöðvar á deplóttu svæðunum. Yfirlit yfir gossprungur norðan jökuls er t. d. að finna í grein Guðrúnar Larsen (1982), bls. 59; unnið úr ýmsum heimildum. — The NW- part ofVatnajökull with several central volcanoes. The dotted areas are the Dyngjuháls and Veidivötn volcanic systems. The systems are probably connected, forming one very long system. hann nefnir „minniháttar sprungugos“ (ólivín-þóleiít) (Sigurður Steinþórsson 1977). Á árabilinu 1690-1730 féll gjóska úr seinni flokknum á Bárðar- bungu sem hér segir: 1697,1706, 1707, 1711/12, 1716, 1717 og 1720. A. m. k. fimm gosanna eru óstaðsett (Sigurður Steinþórsson 1977) eða talin vera úr Kverkfjöllum. Næsta skref tekur Guðrún Larsen. í greininni „Gjóskutímatal Jökuldals“ í ritinu „Eldur er í norðri" (1982) sýnir hún fram á hvernig nota megi títan- og járninnihald til að flokka gjósku til eldstöðvakerfa. Á línuriti hennar (2. mynd) lendir gjóska úr Veiðivatna- og Dyngjuhálskerfunum saman á af- mörkuðum bletti. Hann var fundinn með því að merkja á sams konar línu- rit niðurstööur úr efnagreiningum á þekktum sýnum úr báðum kerfunum. Ekki reynist unnt að gera greinarmun á kerfunum með þessum örgreiningum einum, enda kunna þau að vera eitt kerfi. Samkvæmt niðurstöðum Guðrúnar ber gos 1717 öll merki þess að vera úr Dyngjuhálsi/Veiðivötnum. Þar eð hlaup í Jökulsá ber upp á sama ár, er líklegt að eldurinn hafi komið upp á 44

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.