Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 40

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 40
86 NÁTT Ú RU FRÆÐ I N G U RIN N Melur (Elyrnus arenarius)............................ 5 fræ Hvönn (Angelica archangelica, sennilega var. litorulis) 1 fræ Fjörukál (Cakile edentula)........................... 1 fræ Á einum stað í flæðarmálinu hafði skolað upp einni lifandi jurt með rót og grænum blöðum, sem reyndist vera baldursbrá (Matri- caria maritima). Ekki hafði þessi planta þó fest rætur. Nokkru frá var lifandi stöngulendi af burnirót 1. mynd. Fræ rekin á Surtseyjarfjörur, af mel, hvönn og fjörukáli. The first drifting seeds found on Surtsey, Elymus, Angelica and Cakile. (Sedum rosea). Það hefði mátt ætla, að mos- ar og skófir yrðu meðal fyrstu landnemanna, en þeirra gætti þó ekki. Til þess að reyna að kornast að því, hvaða gró eða lægri ver- ur væru einkum á sveimi yfir eynni, voru settar upp petrí- skálar og var þeim komið fyr- ir á stöngum í 50 cm hæð frá jörðu, annars vegar á eiðinu við lónið og hins vegar á norð- • anverðum sandinum. Voru skálarnar 4 á livorum stað, ein með mygluæti, ein með venju- legu bakteríuæti, ein með blóðagar og ein með fjórum glycerínbornum þekjuglerj- um, til þess að höndla v'æntan- leg gró. Skálarnar stóðu opnar í 5—7 klukkutíma. í þær sett- ist engin mygla og á sandinum settist engin baktería á venju- legt æti, en 11 kóloníur af 4 tegundum á blóðagar. Á eiðinu voru skálarnar undir stöð- ugu niðurstreymi og öskufalli og á þeim voru 10 kóloníur af sömu bakteríutegund á venjulegu bakteríuæti og 26 kóloníur fjögurra bakteríutegunda á blóðagar. Enda þótt rannsókn á tilkomu lífs á Surtsey hafi fyrst og fremst almennt gildi og veiti fróðleik um hvernig og í hvaða röð lífverur

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.