Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 34
76 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 1111111111111111111111111111111111II1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II111111111111 ] 111111111II1111111111111111111111II1111 mjög' stórt, 3—4 sinnum stærra en síldarhreistur, og gott til ald- ursákvarðana, ef um unga fiska er að ræða. Þess má geta hér að gamni, að hreistrið hefur verið notað til skrauts í öðrum lönd- um, haft í brjóstnálar og þess háttar. — Kvarnirnar reyndust yfirleitt góðar til aldursákvarðana, og eftir þeim hefi eg rann- sakað aldur á 415 fiskum, nefnilega 338 frá svæði 1, 27 frá svæði 2 og 50 frá svæði 4. Gulllaxinn verður auðsjáanlega nokkuð gam- all, því að eg hefi með fullri vissu fundið 24 vetra gamla fiska, en það var líka það elzta, sem eg gat ákveðið með vissu. Á hinn bóginn voru yngstu fiskarnir (úr Jökuldjúpinu) aðeins 2 vetra, en á mörgum var ekki hægt að rannsaka aldurinn með vissu, vegna þess hve þeir voru gamlir og vetrarhringirnir ógreinilegir. Stærðarmunur var lítill á hængum og hrygnum, þó virtust hrygn- urnar heldur stærri, en vanalega var munurinn aðeins brot úr cm, ef hann var þá nokkur. Hér. fer á eftir meðalstærð á gulllaxi eftir aldri frá svæði 1 og 4.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.