Náttúrufræðingurinn - 1949, Blaðsíða 6
98
N ÁTT Ú RUFRÆÐINGURINN
Steinunnar dóttur sinnar á Hæli í Gnúpverjahreppi. Tveim árum
fyrr andaðist Páll Melsted sagnfræðingur, bróðir hennar, kominn á
98. ár. Var Páll amtmaður faðir þeirra 5. maður í beinan karllegg
frá Hrólfi sterka. Fyrri kona eldra Páls Melsted og móðir Ragn-
heiðar var Anna Sigríður, dóttir Stefáns amtmanns Þórarinssonar,
en foreldrar Vigfúsar sýslumanns, móðurafa Helga Pjeturss voru
þau séra Sigurður í Hraungerði, sonur séra Gísla í Odda Þórarins-
sonar, og kona hans Guðrún dóttir Vigfúsar sýslumanns á Hlíðar-
enda Þórarinssonar, systir Bjarna skálds Thorarensen. Voru þrír
langafar Önnu Sigríðar, móður Helga Pjeturss, þannig bræður, synir
Þórarins sýslumanns á Grund, ættföður Thorarensenanna. Lengra
fram eru í þessum ættum ýmsir afbragðsmenn, svo sem Oddur bisk-
up liinn stjörnuspaki og Stefán skáld í Vallanesi. Meðal annarra ætt-
feðra dr. Helga er að nefna þá fræðabiskupana Guðbrand Þorláks-
son og Þórð landfræðing Þorláksson, Vísa-Gísla Magnússon og síðast
en ekki sízt athafnamanninn Skúla landfógeta Magnússon, sem dr.
Helgi var sjötti maður frá.*
Helgi ólst upp í Reykjavík. Námsgáfur og bókhneigð rík hafa
snemma gert vart við sig hjá honum. Jafnaldri hans hefur tjáð mér,
að sem ungur drengur hafi Helgi verið hlédrægur í hópi ungmenna
bæjarins og lítt sótzt eftir leikum þeirra. Sjálfur telur Helgi sig verið
hafa til tvítugs einn hinn líkamlega ómenntaðasta mann sinna jafn-
aldra og kyrrsetumann hinn mesta. En það sýnir nokkuð, að hverju
barnshugurinn hefur beinzt, að á bók, sem honum er gefin sjö ára
gömlum, er hann skrifaður „studiosus“.
Helgi var reyndur til 1. bekkjar Lærða skólans 29. júní 1885, þá
13 ára garnall, og er liinn 5. við röðun í bekknum 2. desember um
veturinn. Úr því er liann ýmist 1., 2. eða 3. í röðinni og þó ol'tast
hinn 1. Við stúdentsprófið, 1891, varð hann efstur námsfélaga sinna.
Lá við, að hann lireppti ágætiseinkunn, en þess ber að geta, að þá
þótti það tíðindum sæta, ef piltur hlyti ágætiseinkunn á stúdents-
jjrófi, svo sjaldan var hún þá gefin. Samsumars sigldi Helgi til náms
við Hafnarháskóla. Námsefnið var löngu ákveðið. Síðari árin í
Lærða skólanum hafði hann verið að búa sig undir náttúrufræði-
námið. Auk námsgreinanna liafði liann þá lesið jarðfræði Lyells,
Jjróunarfræði Darwins og heimsmyndunarfræði þeirra Humboldts
og Kants.
* Eiríkur Einarsson alþ.m. frá Hæli licfur leiðbeint mér með móðurættina. Flyt ég
honum beztu þakkir fyrir. — J. Á.