Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 7

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 7
DR. PHIL. HELGI PJETURSS 99 í háskólanum stundaði Helgi aðallega dýrafræði og jarðfræði. Við náttúrufræðideild Hafnarháskóla voru Jrá ýmsir miklir námsgarpar, er síðar hafa orðið víðkunnir rnenn fyrir merkilegar rannsóknir á sviði náttúruvísindanna. J námskeppninni við þessa félaga jókst Helga ásmegin, og sjálfstraust hans óx, er hann fann sig standa þeim fyllilega á sporði við námið. Einn nánasti námsfélagi Helga frá há- skólaárunum og samtímis útskrifaður er prófessor O. B. Bpggild, er um mörg ár var aðalkennari í jarðfræði við Hafnarháskóla. Líkt og flestir hinna íslenzku Hafnarstúdenta Jreirra ára og ára- tuganna næstu þar á eftir bjó Helgi við þröngan fjárhag á Hafnar- árunum, er kom liart niður á lteilsu hans. Kyrrsetan við próflestur í köldum húsakynnum haustið 1896 hafði í för með sér liðaveiki, er gerði honum erfitt um allar hreyfingar. Þá varð honum mikil ltressing að leikfimiæfingum, er liann hafði lekið að iðka af nokkru kappi um tvítugt. Hélt hann áfram að iðka leikfimi úr því alla ævi, meðan heilsan leyfði, með þeim árangri, að hann, sem á unglings skeiði hafði verið „einn af ómenntuðustu mönnum líkamlega“ sinna jafnaldra, varð á manndóms- og efri árum ævinnar ágætlega íþrótt- um búinn, allra manna íturvaxnastur, stæltastur og mýkstur í fram- göngu. í janúar 1897 lauk Helgi háskólaprófi í náttúrufræði með miklu lofi. Strax að því loknu tók hann að búast til rannsóknarferðar til Grænlands, er hann hafði verið valinn til. Um hvíld var ekki að ræða eftir Jneytandi próflestur. Það mætti segja, að Grænlandsförin hafi verið síðasti undirbúningurinn að rannsóknarstörfunum, sem biðu hans heima. Við námið hafði hann reynzt skörungur til vits og verka. Nú skyldi reynt, hvernig honum tækist að nota hina bóklegu þekkingu við lausnir erfiðra viðfangsefna úti í náttúrunni, nú skyldu kraftarnir reyndir á Jiví sviði, sem liann hafði valið sér að vinna á. Grænlandsleiðangurinn lireppti langa og Jmeytandi útivist vestur yfir hafið. Aðbúnaður á skipinu var þröngur og ónæðisamur, svo að sjóferðin, sem átt hefði að verða til hvíldar og hressingar, hafði al- gerlega gagnstæð áhrif. Um sumarið lauk Helgi þeirn rannsóknum, sem fyrir hann höfðu verið lagðar og Jrað nokkru betur en vænzt hafði verið. Við rannsóknirnar í Blæsedalnum sá hann betur en Chamberlin, hinn kunni ameríski jarðfræðingur, er dvalizt liafði á Diskó þremur árum áður. Grænlandsferðin varð Helga til heilla og gagns sem jarðfræðingi, hann fann, að hann skildi landið, sem hann

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.