Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 20

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 20
112 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Eyjafjöllum. Loðgresið hefur nú verið tekið upp sem innlend teg. í Flóru íslands, en var áður talið meðal slæðinga. Dr. Helgi Jónsson fann það fyrst á nokkrum stöðum undir Eyjafjöllum og taldi þá þegar réttmætt að telja það til fslenzkra tegunda. Svo var þó ekki gert 1 2. útg. af Flóru. Fundarstaðurinn inn af Seljavöllum sannfærði mig ttm, að hér væri að minnsta kosti um fullílendan slæðing að ræða, ef ekki góða og gilda innlenda tegund, sem ég hef Jró mesta trú á. Loðgresið óx þarna á víð og dreif í grýttri hlíð alllangt frá bæjum og götum og hafði á sér öll einkenni heimaalinna tegunda. Sennilega vex það allvíöa um neðanverðar brekkur í Eyjafjallasveit, þótt ekki verði um Jrað sagt með vissu. 12. Poa laxa *flexuosa, lotsveifgras. — Snjófjöll, Tröllakirkja við Holtavörðuheiði, Kvígindisfell, Þverfell, Kaldidalur meðfram aurum Þórisjökuls. 13. Phippsia algida, snænarfagrás. — Tröllakirkja. 14. Glyceria fluitans, flóðapuntur. — Allvíða undir Eyjafjöllum og í nágrenni Berg- jrórshvols x Landeyjum. Eftir Jnú, sent kunnugt er, þá er flóðapuntur algengur austan frá Eyjafjöllum vestur að Ölfusá, um lágsveitirnar, þó er óvíst um, hvort hann vex í Holtunum, a. m. k. lief ég ekki séð þann þar á leið nrinni. Utan Jressa svæðis er hann mjög sjaldséður, sjá 3. mynd. 15. Scirpus acicularis, vatnsnæli. — Leirártjörn við Kaldadal, eingöngu f. submersa. lö. Carex dioeca, tvíbýlisstör. — Tumastaðir og Múlakot í Fljótshlfð. 17. C. echinata, ígulstör. — Varmáhlíð, Hvammur undir Eyjafjöllum. 18. C. diandra, safastör. — Önundarhorn undir Eyjafjöllum, Stóra Hof, Rangár- völlum. 4. mynd. 19. C. Halleri, fjallastör. — Víða á Brunnasvæðinu. 20. C. atrata, sótstör. — Við Reyðarvatn, Þingvellir, Tumastaðir í Fljótshlíö, við Gljúfrabúa undir Eyjafjöllum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.