Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 22
114
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
una nokkuð í efa. Síðar athuguðum við Guðni Guðjónsson stör þessa hyor í sínu lagi,
og komumst báðir að sömu niðurstöðu, að um þessa tegund gœti ekki verið að ræða.
Hins vegar þótti okkur ýmislegt í útliti starar þessarar geta bent til, að hún væri
bastarður rnilli C. rostrata og C. saxatilis, en hvort svo sé, verður sérfræðingur að
skera úr. Hér er um sömu stör að ræða og þá, er ég gat um í riti mínu um Gróður á
Vestfjörðum, að kynni að vera C. vesicaria. Einnig hef ég fundið hana í Víðidal í Lóni
e)stra 1935.
25. Juncus bulbosus, hnúðsef. — Á nokkrum stöðum undir Eyjafjöllum, alg. í
Vestur-Landeyjum og um neðanverð Holt. Sjá annars 6. mynd.
6. md. Juncus bulbosus.
26. Luzula sudetica, dökkhæra. — Fornihvammur, Hvammur í Norðurárdal, í hálf-
deigjumýrum. Ný á Vesturlandi.
27. Leucorchis albida, hjónagras. — Þórólfsfell í Fljótshlíð.
28. Listera cordala, hjartatvíblaðka. — Fornihvammur, Kvígindisfell við Kaldadal.
29. Corallorhiza trifida, kræklurót. — Múlakot í Fljótshlíð.
30. Minuartia biflora, fjallanóra. — Fornihvammur, Holtavörðuheiði, Kvígindisfell.
31. Sagina intermedia, snækrækill'. — Holtavörðuheiði, Brunnasvæðið, Kaldidalur á
nokkrum stöðum.
32. Lychnis flos cuculi, munkahetta. — Önundarhorn undir Eyjafjöllum. Fann hana
ekki annars staðar, þar sem ég fór um. Eins og myndin sýnir, 7. mynd, hefur hún
naumast fundizt vestan Markarfljóts né austan Mýrdalssands nema Jrá sem slæðingur.
33. Ranunculus pygmaeus, dvergsóley. — Kvigindisfell við Kaldadal.
34. Subularia aquaiica, alurt. — Allvíða í tjörnum á Brunnasvæðinu, fann hana hins
vegar ckki Jrar, sem ég fór um í Rangárvallasýslu,