Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 5

Náttúrufræðingurinn - 1949, Qupperneq 5
GEYSIR O G AÐFÆRSLUÆÐAR HANS 147 um hita, þurfti til þess um 2 mínútur. Thermistorarnir, sem menn í Bandaríkjunum hafa komizt. á að búa til á síðari árum, hafa hins vegar þann kostinn að geta náð að sýna hitann réttan á örfáum sek- úndum, og eru því sérstaklega vel til þess fallnir að mæla þessar hitasveiflur. Mælingar Þorbjarnar Sigurgeirssonar staðfestu þetta greinilega. Eftir mælingum hans verða þó hitasveiflurnar bæði sneggri og meiri sums staðar í hverapípunni en menn hafði órað fyr- 'ir, og liggur það í því, að thermistorinn getur betur fylgt hitabreyt- ingum umhverfisins en tilsvarandi tæki hjá Barth. Sé tekið tillit til þessa munar á tækjunum, sem þeir notuðu, má segja, að samræmið á milli mælinga þeirra Barths og Þorbjarnar sé að þessu leyti gott. Það er nú fróðlegt að gera frekari samanburð á mælingum þessara fræði- manna, og koma þá helzt til athugunar fyrstu mælingar þeirra. Stendur þá eins á að því leyti, að hveraskálin er full og nokkuð liðið frá gosi. Eigi veit ég, hve langt hefur verið liðið frá gosi, er Þorbjörn gerði mælingar þær, sem sýndar eru með 2. mynd í ritgerð lians. Hið innra ástand hversins getur því hafa verið annað, þótt hann að ytra útliti hafi verið eins. Barth tilgreinir meðalhitann á 7 stöðum í hverapípunni, og með línuriti áætlar hann gang meðalhitans milli mælistaðanna. Línurit þetta hef ég tekið upp hér á mynd 1. og er það merkt þar BB. Þor- björn mælir hitann á 20 stöðum í hverpípunni með 1 metra milli- bili, en hann tilgreinir eigi meðalhitann, heldur gefur til kynna (á 2. mynd í ritgerð hans) hæsta og lægsta hita, sem hann mældi á Iiverjum stað. Til þess að fá út úr því meðalhitann hef ég tekið meðaltal hæsta og lægsta hita. Þótt þetta sé venjuleg aðferð, er hún ekki alveg nákvæm, en mun þó vera nægilega nákvæm hér í flestum tilfellum. Meðalhitann þannig fundinn hef ég sett niður á mynd 1 og tengt punktana saman með línuritinu AA. Óreglan í gangi meðal- hitans, sem kemur í ljós milli 11 og 14 metra dýpis, sést ekki á línu- riti Barths, en það getur stafað af því, að á þessu dýpi er aðeins einn mælingarstaður hjá honum og næstu mælingarstaðir svo langt fyrir ofan og neðan, að óregla í gangi meðalhitans á þessu svæði næst ekki á línuritið, nema vitað sé um hana á annan hátt. Að öðru leyti er gangur meðalhitans svipaður á báðum línuritunum. Línurit Barths sýnir, að meðalhitinn neðst í hverapípunni minnkar, er neðar dreg- ur. Á línuriti AA breytist meðalhitinn ekki með dýptinni neðst í pípunni, en þar sem mælingar neðan við 19i/£ metra dýpi vantar, má láta sér detta í liug, að allra neðst í hverapípunni liefði meðal-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.