Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 11

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 11
GEYSIR OG AÐFÆRSLUÆÐAR HANS 153 Að reikna þrýstinginn út eins og vatnið í hvernum væri kyrrt leiðir i þessu tilfelli til rangrar niður- stöðu. Ég liafði hugsað mér að mæla þrýstinginn jafn- franrt hitamælingum í Geysi. Ég ætlaði að nota til þessara mælinga i/, þumlungs vatnspípur sett- ar saman eins og mynd 2 sýnir. Neðri endinn, sem er opinn, er nteð ofurlítilli krókbeygju, en efri endinn með vatnshæðarmæli og hana, sem er lokað, þegar allt loft hefur verið sogið úr pípunni og hún er algerlega full af vatni. Þegar útséð var, að hita- mælingatækin fengjust ekki á þessu sumri, afréð ég að reyna þrýst- ingstækið í Geysi, svo að lagfæra mætti fyrir næsta sumar, ef því væri ábótavant, en með góðra manna aðstoð hafði ég fengið lánað það, sem til þess þurfti og ég hafði eigi sjálfur. Ég liafði beðið að hafa hverinn fullan, nema þegar sýna þurfti gos, en um morguninn 1. septemlier, er ég ásamt 4 vinum fór austur, var símasambands- laust við Geysisstöðina. Er við vorum nýkomnir að gistihúsinu, en höfðum ekki enn komið að Geysi sjálfum, gaus hann litlu gosi. Hafði láðst að stífla raufina, er vatnið rennur um, er vatnsborð hversins er lækkað. Þótt tilraun mín gæti nú eigi náð tilgangi sínum að öllu leyti, vildi ég samt prófa, hvernig tækist að koma pípunni fyrir í Geysi. Þetta reyndist auðvelt, og eftir nokkra bið varð vart við srnáa þrýstingskippi á mælinum. Þeir urðu tíðari og meiri, er á leið, og rétt fyrir næsta smágos, sem varð um 4 stundum eftir hið fyrra smágos, nam þrýstingsaukinn 0.6 metra vatnshæð. Hver þrýst- ingsauki stóð aðeins augnablik, á eftir kom jafnskammvinnur undir- þrýstingur, sem gat orðið næstum jafnmikill. Meðan á gosinu stóð, en hæð þess var áætluð 8—10 m, sveiflaðist þrýstingurinn miklu meira, en þar kom líka til greina, að mælipípan sveiflaðist þá upp 9,5 m

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.