Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 33
HAFSTRAUMAR VIÐ NORÐURLAND
79
Sumarið 1948 var einnig mun minna af köldum sjó í yfirborðslögun-
um en sumarið 1930 (rannsóknir Rose Mary). Þá sýna rannsóknir
Dana út af Austurlandi, að Austur-íslandsstraumurinn hefur náð
yfir minna svæði sumarið 1948 en sum fyrri ár. Danski haffræðingur-
inn Frede Hermann1 segir:
„The area covered by the East-Icelandic current in August 1948
at this latitude2 was only about half of the area covered by it at the
same seasons in 1900 and 1903.“3
Mér virðist því, að síldarleysið sumarið 1948 verði ekki skýrt með
óvenjulegum styrk Austur-íslandsstraumsins, og verði því hér að
grípa til einhverrar annarrar skýringar.
í grein, sem birtist í Fiskets Gang, 12. október 1950, bendir De-
vold hins vegar á, að síldin haldi sig aðeins í efstu 30 metrunum og
muni því dýptin niður að hitaskiptalaginu ráða mestu um ferðir
hennar. Hér virðist mér málið skýrt á annan veg, sem sé að göngur
síldarinnar ákvarðast af sjávarhitanum í yfirborðslögunum og dýp-
inu niður að hitaskiptalaginu. Vafasamt tel ég þó, að víðátta eða
styrkur Austur-íslandsstraumsins ráði þar mestu, heldur sönnu nær,
að sjávarhitinn í yfirborðslögunum og þykkt þeirra ákvarðist fyrst
og fremst af sólarhituninni og ríkjandi veðurskilyrðum á hverjum
tíma.
Að öllu samanlögðu virðist mér því, að enn verði að teljast ósann-
að, með hliðsjón af þeim rannsóknum, sem mér er kunnugt um, að
samband sé milli göngu síldarinnar til Norðurlandsmiðanna og haf-
straumanna, en fróðlegt verður að sjá dóm reynslunnar í þessu efni.
1) Frede Hermann: Hydrographic Conditions in the South Western Part o£ the Nor-
wegian Sea, Annales Biologiques (1948) 1950. 2) Þ. e. um 65° n. br. 3) Svæði það,
sem Austur-íslandsstraumurinn náði yfir í ágúst 1948 á þessari breiddargráðu, var að-
eins helmingur þess svæðis, sem hann náði yfir á sama árstíma árin 1900 og 1903.
On the Hydrography of the Iceland Sea
by Unnsteinn Stefánsson
ABSTRACT
In this essay the author discusses a few of the most important features in the distri-
bution of the water masses off the north coast of Iceland.
In the section off Kögur Atlantic water extended in 1949 over the coastal area meet-
ing the polar water at the edge of the shelf. Tlie current velocity at right angles to