Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 40

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 40
86 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Það mun sanni nær, að engin einstök ákvörðun á efnaeiginleikum jarðvegs gefi jafn miklar upplýsingar og sýrustigið. Miðað við flestar ákvarðanir aðrar krefst sýrustigsmæling tiltölulega fárra tækja og efna. Jakob hafði ekki rafmagn á Lækjamóti, en án rafmagris er óger- legt að reka venjulega efnarannsóknastofu. Að öllu athuguðu var því eðlilegt, að Jakob legði áherzlu á sýrufarsrannsóknir. Búnaðar- þing veitti Jakobi árið 1933 nokkurn styrk til áhaldakaupa og rann- sókna á jarðvegi. Árið 1935 birtist í Búnaðarritinu ýtarleg grein eftir Jakob um sýrufarsrannsóknir hans og eðli jarðvegssúrnunar. Auk sýrustigs- mælinga í jarðvegi rannsakaði hann viðnám jarðvegsins gegn sýru- stigsbreytingum, svo og sýrueyðandi eiginleika ýmissa bergtegunda og sýrustig vatnsfalla á ýmsum tímum árs. Jakob gerði tilraunir með mismunandi sýrufar jarðvegs fyrir bygg. Niðurstöðurnar eru birtar í Frey 1936. Þær sýndu, að uppskerumagnið fer eftir sýrustiginu. Hann skrifaði grein í dagblaðið „Framsókn“ 1937, er fjallar um sýrufarsrannsóknir hans yfirleitt. Árið 1943 kom út í „Búfræðingnum" jarðvegsfræði eftir Jakob Líndal. Hún hefir síðan verið notuð sem kennslubók við bændaskól- ana. í þessari ritsmíð er kafli, sem fjallar um sýrumyndun í jarðvegi og sýrufarsrannsóknir höfundar. Hafði hann þá rannsakað um 2400 sýnishorn frá ýmsum landshlutum, en þó flest úr Húnavatnssýslum. Áður en Jakob hóf rannsóknir sínar var mjög lítið vitað um sýrufar íslenzks jarðvegs. Niðurstöður hans bregða upp sæmilegri heildar- mynd af þessum eiginleika jarðvegsins, þó að þar séu að sjálfsögðu ekki öll kurl komin til grafar, einkum í þeim landshlutum, þar sem Jakob átti erfiðast með að afla sýnishorna. Rannsóknir Jakobs hafa bæði fræðilega og hagnýta þýðingu. Þær sýna, að kalkþörf er hér minni en ætla mætti miðað við íslenzka veðráttu, einkum norðanlands. Þær benda einnig til þess, að íslenzk- ar bergtegundir veiti nokkuð misjafnt viðnám gegn súrnun jarðvegs- ins. Eins og fyrr var getið var vinnuaðstaðan á Lækjamóti að mestu takmörkuð við rannsóknir á sýrufari. Mér er kunnugt um, að Jakob hafði hug á að gera aðrar athuganir á jarðvegi, einkum að því er snerti eðliseiginleika hans. En til þess hefði þurft rafmagn fyrst og fremst og fleiri áhöld. Hann mun ekki heldur hafa séð ástæðu til að leggja mjög ríka áherzlu á víðtækari sýrufarsrannsóknir, nema aðrar samhliða ákvarðanir væru gerðar samtímis. Viðfangsefnin skorti

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.