Náttúrufræðingurinn - 1954, Page 8
2
NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN
1 Eyjafjarðarsýslu fannst jarðskjálftinn allvíða, en ekki er vitað,
að hann hafi fundizt sunnan Kristness. Á svæðinu frá Siglufirði til
Akureyrar var styrkleikinn víðast III stig (t. d. á Siglufirði, Ólafs-
firði, Dalvik og Akureyri), en hann virðist hafa verið vægari í Hörg-
árdal. I Grímsey fannst hann, en var mjög vægur.
I Suður-Þingeyjarsýslu fannst hann einnig allviða. 1 vestustu sveit-
unum (Svalbarðsströnd, Höfðahverfi og Fnjóskadal) var hann mjög
vægur, og í Mývatnssveit fannst hann ekki. Snarpastur virðist hann
hafa verið í Kaldakinn og á Tjörnesi, III—IV stig. Á Húsavík fannst
jarðskjálftinn greinilega, en mjög misjafnlega eftir því, hvar í bæn-
um það var. Svo virðist sem jarðskjálfta gæti þar að jafnaði meira
norðan tii í bænum heldur en sunnan til.
I Norður-Þingeyjarsýslu fannst jarðskjálftinn víða, þó varð hans
ekki vart á Hólsfjöllum og mjög lítið í Kelduhverfi og á Langanesi.
Mest bar á honum sums staðar í Axarfirði, Núpasveit og Þistilfirði.
Styrkleiki jarðskjálftans var mestur IV stig, en víðast III stig.
I Norður-Múla$ýslu fannst jarðskjálftinn á nokkrum bæjum i
Skeggjastaðahreppi, styrkleiki III stig. Austar varð hans hvergi vart.
Af þessu sést, að jarðskjálftinn heíur fundizt á stóru svæði (um
240 km frá austri til vesturs). Einnig er augljóst, að upptök jarð-
skjálftans hafa verið á hafsbotni undan norðurströndinni milli Þistil-
fjarðar og Skjálfanda.
Jarðskjálfti þessi sást á mælum á þremur stöðum: Reykjavík, Scores-
bysund í Grænlandi og Kiruna i Svíþjóð. Fjarlægð upptakanna frá
Reykjavík mældist um 370 km. Fjarlægðin frá Scoresbysund virðist
helzt hafa verið 470—480 km, en vegna smávegis bilunar á mælun-
um þar verður hún ekki ákvörðuð með vissu. í Kiruna sást jarð-
skjálftinn mjög óglöggt.
Sá staður, sem er í 370 km fjarlægð frá Reykjavík og 470 km frá
Scoresbysund, er um 50 km norður af Tjörnesi (66°40'N, 17°00'W).
Upplýsingar frá Kiruna eru í samræmi við upptök á þessum stað.
25.febrúar kl. 6 að morgni fannst lítill jarðskjálftakippur i Skoru-
vík á Langanesi.
21.júni fundust tveir jarðskjálftakippir, annar um kl. 11, hinn kl.
13:50 (sumartimi), í Þverárhlíð og ofanverðum Stafholtstungum í
Mýrasýslu. Kippirnir voru alstaðar mjög vægir. Sá síðari sást á jarð-
skjálftamælum í Reykjavík, og virðast upptök hans hafa verið í um
80 km fjarlægð.
16. júlí kl. 06:17 (sumartími) fannst dálítill jarðskjálftakippur (III