Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 10
4
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Jarðskjálftamælamir í Reykjavík sýndu nokkuð á annað hundrað
hræringa þessa tvo daga, og virðast upptök þeirra hafa verið í 32
—35 km fjarlægð og stefnan frá Reykjavik 8°—12° sunnan við
austur. Eftir því hafa upptökin verið nálægt Innstadal í Hengli.
22.ágúst kl. 01:01 (sumartími) fannst vægur jarðskjálfti (II—III
stig) i Reykjavík, Eyrarbakka og sennilega víðar. Upptök hans hafa
vafalaust verið á sama stað og 20.—21.ágúst.
TAFLA
■yfir jarðskjálfta á Islandi áriÖ 1953, stœrð 2: 3,5
(Table showing earthquakes of magnitude =5 3,5 occurring in Iceland in 1953)
1953)
Dagur Upphafstimi Upptök Stærö Mesti styrkleiki
Date Origin time (GMT) Epicenter Magnitude Maximum intensity
10. febr. 14 26 51 66.°7N, 17.°0W 4.8 IV
2. apríl 22 23 00 250 km frá Rvík 3.5
21. júlí 00 19 27 63.°9N,22.°1W 4.0 III
20. ágúst 11 00 50 £ OO o s 2 O 3.5 (IV)
20. ágúst 12 00 24 64.°1N, 21.°3W 3.7 (IV)
20. ágúst 13 11 05 64.°1N, 21.°3W 4.1 V
20. ágúst 17 58 25 64.°1N, 21.°3W 3.7 (IV)
22. ágúst 01 01 22 64.°1N, 21.°3W 3.5 (IV)
28. ágúst 02 12 10 63.°9N, 22.°1W 3.8 III
16. sept. 08 16 13 65.°7N, 17.°0W 3.8 IV
21. okt. 15 14 58 63.°9N,22.°1W 3.5
23. okt. 20 45 03 64.°1N, 21.°3W 3.9 IV
28. ágúst kl. 01:58 og 02:12 (sumartimi) fundust vægir jarðskjálfta-
kippir (II—III stig) í Reykjavík. Samkvæmt jarðskjálftamælunum í
Reykjavík hafa upptökin verið í um 27 km fjarlægð og stefnan frá
Reykjavík 10°—20° fyrir vestan suður, eða mjög nálægt Krísuvík,
sennilega á sama stað og 21. júlí.
ló.september kl. 08:16 (sumartími) fannst vægur jarðskjálftakipp-
ur við norðanvert Mývatn (Reykjahlíð, Grímsstöðum og Neslöndum).
Hræring þessi sást á jarðskjálftamælum í Reykjavik, og virðast upp-
tökin hafa verið í 300 km fjarlægð.