Náttúrufræðingurinn - 1956, Qupperneq 33
GESTIR OG LANDNEMAR í GRÓÐURRÍKI ÍSLANDS
141
Alls hef ég fundið að Reykjalundi 1955—56: 39 slæðinga og þar
af 23 sjaldgæfa. Ég vil aðeins nefna hina helztu:
Deseurainia Sophia Þ e f j u r t. — Allmargar.
Malva Kisuostur. — Ein planta 1955.
Anchura arvensis Uxajurt. — Nokkrar plöntur 1955.
Echiurn vulgare. Naðurkollur. —1955.
Hordeum jubatum íkornabygg. — 1956. Sennilega borizt
með grasfræi.
Silene cucubalus G a r ð a h o 1 u r t. — 1955—56. í sumar hefur
ein planta, sem vex í námunda við hitaveitustokkinn, náð geysi-
miklum vexti og borið hátt á þriðja hundrað blóm.
Melandrium noctiflorum Rökkurstjarna*. — Á einum stað
fjarri herskálunum 1955. Hefur fundizt á einum stað norðan-
lands 1953.
Rudbeckia laciniata Sólhattur. — Fann fimm plöntur í
nánd við herskálana sumarið 1955. Tvær blómguðust. Allmargir
þeirra slæðinga, sem ég fann þar þetta sumar hafa algerlega horfið
og liggja til þess meðal annars þær ástæður, að safamikið, þétt
gras og hins vegar þykk leðja af haugarfa hefur breiðzt yfir stað-
inn og kæft þessar jurtir. Ég var úrkula vonar um að sjá sólhatt-
inn nú í sumar og varð því mjög undrandi, er ég sá hann teygja
kollinn upp úr arfabeðjunni um miðjan ágúst — að vísu mjóan
og veikburða. Sólhattur liefur ekki fundizt áður liér á landi.
Potentilla norvegica Noregsmura. — Fann tvær vel þrosk-
aðar plöntur í sumar. Sennilegt að þær hafi vaxið á sama stað
1955, þótt ég veitti því ekki athygli. Noregsmura hefur fundizt
á tveim stöðum norðanlands, en aldrei áður á Suðurlandi.
Saxifraga umbrosa Skuggasteinbrjótur. — Vex á ein-
um stað á móanum skammt frá aðalbyggingunni að Reykjalundi.
Nokkrar plöntur. Ein þeirra hefur náð venjulegum þroska og
borið blóm, hinar eru dvergvaxnar. Þetta mun vera eini staður-
inn hér á landi, þar sem skuggasteinbrjótur vex sjálfsáinn úti
á móa.
Lupinus perennis Úlfabaunir. — Þeirra er hvorki getið í
Flóru íslands né íslenzkum jurtum eftir Löve, en á Reykjalundi
vaxa þær villtar á ýmsum stöðum, jafnvel liinum ótrúlegustu, en
eru þá dvergvaxnar. Fræ hafa borizt frá úlfabaunum, sem hafa verið
gróðursettar á Reykjalundi.