Náttúrufræðingurinn - 1956, Side 39
FUGLAMERKINGAR NÁTTÚRUGRIPASAFNSINS 1950-1952 147
en vitneskja um þær barst ekki fyrr en eftir að skýrsla um fuglamerk-
ingarnar 1947—1949 hafði verið birt. Hér á eftir verða fyrst taldar
innlendar og síðan erlendar endurheimtur fugla, sem merktir hafa
verið með íslenzkum merkjum, og að lokum íslenzkar endurheimt-
ur fugla, sem merktir hafa verið erlendis.
Heiðagæsaendurheimtur eru svo margar, að ekki hefur verið tal-
ið fært að birta þær hér. Af heiðagæsunum, sem merktar voru 1951,
höfðu um áramót 1952/1953 alls endurheimtst 145 fuglar, þar af
70 í Englandi, 71 í Skotlandi, 1 í Noregi, 1 í Danmörku og 2 á ís-
landi. Þess má einnig geta, að af heiðagæsunum, sem náðust í Þjórs-
árverum 1951 báru tvær brezk merki. Höfðu þær báðar verið merkt-
ar í Bretlandi veturinn 1950—1951.
Það skal tekið fram, að það eru ekki taldar endurheimtur, þótt
merktir fuglar séu handsamaðir lifandi á sama stað (svæði) og sama
ár og þeir voru merktir. Hins vegar eru það ávallt taldar endur-
heimtur, ef merktir fuglar finnast dauðir eða hafa verið drepnir,
og ennfremur ef merktir fuglar eru handsamaðir lifandi á öðrum
stað (svæði) en þeir voru merktir. Loks eru það einnig taldar end-
urheimtur, ef merktir fuglar eru handsamaðir lifandi á sama stað
og þeir voru merktir, svo framarlega sem eitt ár eða lengri tími er
liðinn frá merkingu þeirra.
I eftirfarandi skrá um endurheimtur eru þessi merki og skamm-
stafanir notuð:
o merktur
t endurheimtur
9 kvenfugl
S karlfugl
ad. fullorðinn fugl
s.st. sama stað
F.d. fundinn dauður
Endurheimtumerkið f er þó aðeins notað, ef fuglinn hefur fund-
izt dauður eða verið drepinn, en ekki ef fuglinn hefur verið hand-
samaður lifandi og sleppt aftur.
Endurheimtur innanlands
Lómur — Colymbus stellatus.
2/4 O ad. 14. 6. 1950 Grímsst. v. Mývatn, S.-Þing. f 15. 5. 1951 s.st. Skotinn.
2/6 O ad. 11. 5. 1952 Grlmsst. v. Mývatn, S.-Þing. Tekinn lifandi úr neti
25. 8. 1952 Reykjahlíð v. Mývatn, S.-Þing.