Náttúrufræðingurinn - 1956, Qupperneq 51
JOHANNKS GRONTVED
159
grasafræðileiðangra, til íslands, Grænlands, Svíþjóðar, Finnlands,
Eistlands, Lettlands og Lithaugalands. Hann skrifaði og fjölda rit-
gerða um grasafræðileg efni, einkum flóru-lýsingar, ekki sízt frá
ýmsum eyjum, er hann hafði rannsakað (Ærö, Anholt, Wormsö,
Runö, Dagö). Einnig vann hann úr gögnum þeim, sem safnað
hafði verið í 5. Thule-leiðangrinum. Hann var í stjórn Grasafræði-
félagsins danska (Dansk Botanisk Forening) 1937—1947, og for-
maður þess félags 1950—1954. Einnig var hann ritstjóri tímarit-
anna Botanisk Tidsskrift og Dansk Botanisk Arkiv í 11 ár (1937-
1947).
Johannes Gröntved kom fjórum sinnurn til íslands (1934, 1935,
1947 og 1951) og ferðaðist víða um landið, oft í fylgd með íslenzk-
um grasafræðingum. Ásamt C. H. Ostenfeld gaf hann út íslands-flóru
á ensku (The Flora of Iceland and the Faroes), en auk þess samdi
hann mikið rit urn íslenzkar háplöntur, einnig á ensku (The
Pteridophyta and Spermatophyta of Iceland). Loks var liann rit-
stjóri hins mikla safnrits „Botany of Iceland“ frá 1940 til dauða-
dags.
Það var að verðleikum að Gröntved naut nokkurrar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín í öðrum löndum. Eistlendingar sæmdu hann
orðu og frá íslandi fékk hann riddarakross Fálkaorðunnar. Auk
þess var hann kjörinn bréfafélagi Vísindafélags íslendinga og
Menningarsjóður styrkti að nokkru tvær síðari ferðir hans til
íslands (1947 og 1951).
Með Johannesi Gröntved er fallinn í valinn maður, sem ís-
lenzk grasafræði á allmikið að þakka, og margir íslenzkir náttúru-
fræðingar hafa misst góðan og tryggan vin. Margir íslendingar
aðrir munu og minnast lians, ekki síst frá ferðum hans um landið,
og óhætt er mér að fullyrða, að hvar sem Johannes Gröntved fór, var
íslandsvinur á ferð.
Árni Friðriksson.