Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 6
162
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
veggjum. Gat hann lítið sinnt embættisstörfum á skólaárinu 1953—
1954 sakir veikinda. Dvaldist hann erlendis, í umsjá sérfróðra
lækna, frá 13. október til 20. nóvember og frá 20. febrúar til 7. maí,
en lá lengst af rúmfastur milli utanferða. Gerði liinn víðkunni
taugaskurðlæknir, prófessor, dr. Eduard Busch, mikla skurðaðgerð
á Pálma og mun hún hafa gefið rektor þau ár, sem hann átti þá
ólifuð. Haustið 1954 tók rektor aftur við fullri skólastjórn. Um
áramót 1955—1956 hóf hann kennslu í tveimur bekkjum, og það,
sem af var þessu skólaári, hafði hann jafnmikla kennslu á hendi
auk fullrar skólastjórnar. Hann var hress og reifur, ræðinn og oft
létt yfir honum líkt og áður fyrr og lét hann í Ijós ánægju sína
yfir hve vel gengi í skólanum. Þeir, sem í liði hans voru, vonuðu
nú að sannur og varanlegur bati væri orðinn á heilsu hans, en þar
um mun kjarkur Pálma, karlmennska hans og sjálfsþjálfun hafa villt.
Pálmi Hannesson fæddist að Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi
3. janúar 1898. Var hann því tæpra 59 ára gamall, er hann lézt.
í föðurætt var hann af traustu skagfirzku bergi brotinn. Var faðir
hans Hannes Pétursson (f. 1857, d. 1. maí 1900), bóndi að Skíðastöð-
um, sonur Péturs Pálmasonar (f. 1819, d. 1894), bónda að Valadal
og Álfgeirsvöllum, og konu hans Jórunnar Hannesdóttur, hónda
að Hömrum (d. 1867), Ásmundssonar, bónda að Ytri-Kotum og
Húsey, Þorleifssonar. Bar Pálmi rektor nafn langafa síns, Pálma
Magnússonar (f. 1793), bónda að Syðra-Vallholti, er kvæntur var
Ingibjörgu Bjarnadóttur (faðir hennar drukknar 1795) frá Garði í
Hegranesi. Um Pálma Magnússon er sögn í ævisögu Espólíns. Lýsir
Espóh'n honum þannig: „var hann maður vel vitiborinn í gildara
lagi að röskleika, en hæglátur og óframgjarn í hvívetna“.
Magnús (f. 1745, d. 1815), faðir Pálma að Syðra-Vallholti, sat
sömu jörð og sonur hans. Hann var Pétursson. Kona Magnúsar var
Ingunn Ólafsdóttir, bónda að Frostastöðum í Blönduhlíð, Jónsson-
ar Ólafssonar, og Kristínar Björnsdóttur, prests að Hjaltastöðum,
bróður Þorláks Skúlasonar, bónda að Seylu, Ólafssonar. Frá dætr-
um Ólafs Jónssonar að Frostastöðum segir Espólín að kornið sé
„margt heldri manna“. Ein systir Ingunnar Ólafsdóttur frá Frosta-
stöðum, langa-langömmu Pálma rektors, var Þuríður kona Bene-
dikts Gröndals eldra, yfirdómara og skálds, föður Helgu konu
Sveinbjarnar rektors Egilssonar, föður Benedikts Gröndals yngra,
adjunkts og skálds. Ein systir Gröndals yngra var Sigríður kona