Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 7
PÁLMI HANNESSON
163
Gunnlaugs sýslumanns Blöndals, föður Þórunnar (Nielsen), móður
SigTÍðar (Bengtson, d. í nóvember 1956), móður celló-snillingsins
Erlings Blöndals Bengtson. Sonur Ólafs jónssonar að Frostastöðum
og bróðir Ingunnar konu Magnúsar Péturssonar, var Ólafur (Olav-
sen) teiknimeistari og lektor í stærðfræði við námuskólann að Kongs-
bergi (f. 1753, d. 1832). Hann var stórþingsmaður frá Kongsbergi
(1818). Hlaut prófessors nafnbót. Talinn aðalstofnandi Lærdóms-
listafélagsins. (íslenzkar æviskrár, IV, 68). Hann átti afkomendur.
— Magnús bóndi að Syðra-Vallholti var sonur Péturs Skúlasonar,
er bjó að Lóni í Viðvíkursveit. Kona Péturs var Guðrún Eyjólfs-
dóttir, bónda að Hólkoti á Reykjaströnd, Grímólfssonar, lrrepp-
stjóra í Staðarhreppi, Jónssonar. Faðir Pétnrs að Lóni var Skúli
bóndi Einarsson, að Hólkoti í Staðarhreppi, kvæntur Margréti
Gunnarsdóttur, en kona Einars er talinn vera Margrét Jónsdóttir,
systir Málmfríðar Jónsdóttur, Bjarnasonar, Hrólfssonar sterka, lög-
réttumanns að Álfgeirsvöllum (á 16. öld), og Ingibjargar Bjarna-
dóttur, Torfasonar sýsliunanns í Klofa. En Hrólfur sterki er talinn
kominn í beinan legg af Lofti ríka. (íslenzkar æviskrár II, 376).
Móðurætt Pálma rektors mun að einum þræði vera þingeysk,
öðrum þráðum er hún húnvetnsk og austfirzk. Ingibjörg móðir
hans, f. 1858, að Þóreyjarnúpi í Kirkjuhvammshreppi, var dóttir Jóns
Eiríkssonar (f. 1793, d. 1867) og konu hans Sigurlaugar Engilberts-
dóttur (f. 1829J að Spena (nú Litla-Hvammi) í Miðfirði, Jónssonar
(f. 1789, d. 1850) á Breiðabólstað í Vesturhópi Jónssonar. Jón mað-
ur Sigurlaugar var óskilgetinn sonur Eiríks Ásgrímssonar að Hól-
um í Reykjadal og síðar að Þverá í Laxárdal. Staðfestuleysi hans
í Þingeyjarsýslu mun hafa því valdið að hann flytzt úr héraði. Ás-
grímur afi Jóns mun hafa verið austfirzkur að kyni, en um móður
Jóns er mér ókunnugt. Kona Engilberts að Spena og langamma
Pálma^ rektors var Ingibjörg Björnsdóttir (f. 1787, d. 1838) að
Urriðaá, Jónssonar. Kona Björns á Urriðaá og langa-langamma
Pálma var Steinunn Helgadóttir (f. 1755, d. 1818) að Valdarási í
Víðidal og síðar að Vatni í Haukadal, Björnssonar að Valdarási,
Sveinssonar. Bróðir Helga Björnssonar var afreksmaðurinn Guð-
mundur Björnsson að Höfnum á Skaga (1756—1781), síðar að Auð-
ólfsstöðum í Langadal. Var hann nefndur „Skagakóngur”. (íslenzk-
ar æviskrár V, 334). Sonur Guðmundar „Skagakóngs“ var Björn
(f. 1794, d. 1821) að Höfnum og Auðólfsstöðum, faðir Ólafs föður
séra Arnljóts að Sauðanesi. Ein dóttir Guðmundar í Höfnum var