Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 8
164
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
Guðrún kona Ólafs Guðmundssonar að Vindhæli og móðir Björns
Ólsens, umboðsmanns, að Þingeyrum, föður Runólfs Magnúss,
stúdents og aljjingismanns, Ólsens, að Þingeyrum, föður Björns
Ólsens, rektors, síðar prófessors. Séra Arnljótur Ólafsson var því
fjórði ættliður frá Birni Sveinssyni bónda að Valdarási, Björn
Ólsen rektor fimmti og Pálmi rektor sjötti.
Hannes Pétursson og Ingibjörg Jónsdóttir voru gefin saman 25.
júlí 1892, þá bæði til heimilis að Álfgeirsvöllum. Bjuggu þau síðan
að Skíðastöðum, unz Hannes lézt úr lungnabólgu, 1. maí 1900. Var
Pálmi þá tveggja ára og fjögurra mánaða gamall. Kvaðst hann, þó
eigi væri hann eldri, er hann missti föður sinn, muna hann óljóst
einu sinni. Systkini Pálma, sem bæði eru eldri en hann, eru Pétur,
póst- og símstjóri á Sauðárkróki, kvæntur Sigi'íði Guðrúnu Sigtryggs-
dóttur, faðir Hannesar skálds, og Jórunn, gift Jóni Sigfússyni, verzl-
unarmanni á Sauðárkróki.
Eftir lát manns síns bjó Ingibjörg Jónsdóttir áfram að Skíða-
stöðum. Giftist hún öðru sinni 2. júlí 1904, Gísla Björnssyni, en
þau munu hafa slitið samvistir, því að 1914 flytzt hún ásamt Pálma
syni sínum til Sauðárkróks. Voru þá eldri börnin áður flutt að
heiman.
Á Skíðastöðum hefur Pálmi vanizt venjnlegum bústörfum þeirra
tíma. En veturinn 1912—1913 dvelst hann að Hrafnagili í F.yja-
firði, hjá frænda sínum, séra Þorsteini Briem, við nám undir skóla.
Var móðir séra Þorsteins Halldóra Pétursdóttir frá Álfgeirsvöllum
og þeir Pálmi rektor og séra Þorsteinn því systkinasynir. Við lok
skólaársins 1913 sezt Pálmi í annan bekk Gagnfræðaskólans á Akur-
eyri og lýkur þaðan gagnfræðaprófi síðara hluta maímánaðar 1915.
Fór þá strax orð af námshæfileikum hans og dugnaði í skóla, einkum
í náttúrufræði, og útskrifaðist hann með átta í þeirri grein við gagn-
fræðapróf. Mun liann þá þegar hafa verið farinn að hyggja á há-
skólanám í náttúruvísindum. Um haustið 1915 er hann tekinn í
fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík og stúdentsprófi lýkur hann
þaðan vorið 1918. Menntaskólaárin mun Pálmi hafa unnið á sumr-
in þar, sem vænlegast var að afla ljár til námskostnaðarins. Snmarið
1917 er hann til dæmis kaupamáður að Eyhildarholti hjá föður-
bróður sínum, Jóni bónda Péturssyni.
í Menntaskólannm naut Pálmi trausts skólafélaganna. Veturinn
1916—1917 er hann kosinn umsjónarmaður úti við, þá í fimmta
bekk. Hann starfar af áhuga í náttúruíræðisfélagi skólans, „Mími“,