Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 14
170
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
skólasel í túni jarðarinnar Reykjakot í Ölfusi. Jörðin var ríkiseign
og fyrirheit var gefið um að selið fengi aukið landrými eftir því
sem þurfa þætti. Staðurinn virtist að ýmsu leyti ákjósanlegur fyrir
slíkt skólasel, landslag stórbrotið og nægur jarðhiti. Byggingarsaga
selsins verður ekki rakin hér. Hana má lesa í skýrslum skólans frá
þessum árum. En með dugnaði og fyrirhyggju lieppnaðist rektor
að láta reisa selið. Var verkið hafið 21. september 1937 og um ára-
mót 1939 var því svo langt komið, að nemendur og stúdentar þeir,
sem mestan þátt höfðu tekið í framkvæmdum, gátu dvalizt í selinu
öðru liverju sér til hressingar og gamans. Sú venja komst svo smátt
og srnátt á, að nemendur hvers bekkjar dveldust í selinu tvisvar um
ltelgar hvern vetur. Auk jress hafa 5. bekkjar nemendur dvalizt þar
við náttúruskoðun síðustu árin í sambandi við 5. bekkjarferðina.
Selsmálið mætti strax miklum og góðum skilningi manna. Margir
nemendur skólans, eldri og yngri, og fjölmargir aðrir vinir skólans
studdu það beint og óbeint. Var rektor þeint öllum þakklátur mjög,
því að það var hans bjargfasta trú, að með skólaselinu væri nem-
endum í té látið tæki, sem gæti eflt þá til meiri manndóms og
þroska, landi og öllum lýð til heilla. Á hinn bóginn var honum það
einnig ljóst, að það væri mjög á vakli nemenda sjálfra, hvort þeir
lieimilishættir sköpuðust í selinu og sá umgengnisbragur væri {tar
við hafður, sem til þroska leiddi og gleði ein hlytist af.
Er þá komið að því skólantáli, sem hiklaust má segja að verið
hafi höfuðmál rektors og hjartansmál síðustu árin, sem ltann lifði,
og að skólanum sneri, húsbyggingarntálinu. Þegar Pálmi tók við
rektorsembættinu 1929, voru skrásettir nemendur í byrjun skóla-
ársins 206. Var þá húsrými sæmilegt. Einsett var í skólastofur og
húsrýmið leyfði að útbúin hafði verið sérstofa fyrir kennslu í
náttúrufræði. Síðar bættist við sérstofa fyrir eðlisfræðikennslu.
Pálma var það vel Ijóst, að slíkur aðbúnaður var nauðsynlegur og
í rauninni sjálfsagður til léttis og þæginda við nám og kennslu í
þessum námsgreinum. Á árunum 1930—1933 fór aðsókn að skól-
anum minnkandi, en óx úr því hröðum skrefunt og í upphafi skóla-
ársins 1952—1953 voru skrásettir 518 nemendur í skólanunr. Síðan
dregur nokkuð úr aðsókninni fram til ársins í fyrra, er nentendur
voru 420. Nú ltefur þetta snúizt aftur við. Þegar skólinn hófst í
haust, voru nemendur 452.
Þessi gífurlega aukna aðsókn nemenda að Menntaskólanum leiddi
brátt til þess, að hið gamla og veglega skólahús gat á engan hátt