Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 21
PÁLMI HANNESSON
177
án efa hafa verið traustari en nokkurs annars manns. Hann vissi ég
allra manna örnefnafróðastan. Pálmi var stálminnugur, fróður vel í
Sturlungasögu og Islendingasögum og hafði hann jafnan á Iiraðbergi
tilvitnanir og orðtök úr þeim. Hann talaði snjallt mál og var eftir-
sóttur fyrirlesari á mannfundum og í útvarp. Stíll hans var hreinn,
þróttmikill og sérstæður. Hann unni íslenzkum þjóðháttum og
kunni manna bezt að fara höndum um þjóðsögur. Pálmi hafði yndi
af góðri hljómlist og fögrum kvæðum, kunni hann vel að meta þær
fögru listir. Pálmi var sænidur stórriddarakrossi Islenzka fálkans og
kommandörkrossi Dannebrogsorðunnar dönsku. Hann var heiðurs-
félagi í Félagi danskra jarðfræðinga. Vinur hans og ferðafélagi frá
fyrri árum, prófessor Niels Nielsen, minntist hans látins á fundi, 4.
desember 1956, í Félagi danskra landfræðinga. — Á myndinni hér
að framan er Pálmi fertugur.
Pálmi kvæntist 17. ágúst 1926 Ragnhildi Skúladóttur Thorodd-
sen. Lifir hún mann sinn. Þau eignuðust fimm börn. Var elztur
(1) Jón Skúli, f. 5. ágúst 1927, d. 3. nóvember 1935. (2) Ingibjörg
Ýr, f. 7. maí 1931, gift Indriða Gíslasyni, cand. mag. í íslenzkum
fræðum. Eiga þau eina dóttur á l'yrsta ári, Ragnhildi Rós. (3) Pétur
Jökull, f. 10. janúar 1933, nú við verkfræðinám í Kaupmannahöfn.
(4) Skúli Jón, f. 10. rnarz 1938, nú í V. bekk máladeildar Mennta-
skólans í Reykjavík. (5) Pálmi Ragnar, f. 31. janúar 1940, þriðja-
bekkjar nemandi í Menntaskólanum.
Föstudaginn 23, nóvember, daginn eftir andlát rektors, mættu
nemendur og kennarar Menntaskólans á sal kl. 10. Settur rektor,
Kristinn Ármannsson, tilkynnti andlátið, og féll síðan kennsla nið-
ur þann dag. Jarðarförin hófst frá dómkirkjunni miðvikudaginn
28. nóv. kl. 2. En kl. 1—2 sama dag fór minningarathöfn fram í skól-
anum, að viðstödclum kennurum skólans og nemendum, nánustu
ættingjum rektors, menntamálaráðherra og biskupi landsins, skóla-
meisturum menntaskólanna á Akureyri og að Laugarvatni og
nokkrum fleirum. Hófst athöfnin, sem ()11 var djúpum söknuði
mörkuð en mjög virðuleg, með forleik eftir Chopin, sem söng-
kennari skólans lék, þá sungu nemendur Integer vitae. Síðan fluttu
stuttar minningarræður þeir Kristinn Ármannsson, rektor, og Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráðherra. Á eftir ræðunum var einnar mín-
útu þögn. Að lokum var sunginn sálmurinn ,,Faðir andanna".
I kirkjunni jarðsöng séra }ón Þorvarðsson. Jarðsett var í Foss-
vogskirkj ugarði.