Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 32
188
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
og veðurfræðingurinn Gordon Manley telur júlíhita í Norður-Eng-
landi á Alleröd-skeiði hafa verið 4—5° C lægri en nú (Manley 1951).
Þjóðverjinn Firbas telur júlíhitann á Eystrasaltsvæðinu hafa verið
allt að 6° C lægri en nú (Firbas 1949), en liins vegar er þess að geta,
að í síðustu ritgerð, sem ég hef lesið um þetta efni, er talið, að júlí-
hiti í Danmörku hafi verið 13—14° C, þ. e. a. s. 2—3° lægri en nú
(Hoppe 1956). Hér við Faxaflóa virðist mismunurinn, sem fyrr
getur, hafa verið í mesta lagi 1.5° C, og líklegt að hann hafi verið
minni.
Raunar er það ekki óeðlilegt, að á Alleröd-skeiði hafi orðið til-
tölulega hlýrra því fjær sem dró frá leifum meginjökulsins í Skand-
ínavíu, sem mun hafa haft bein og óbein áhrif á loftslagið kringum
sig og getur hafa bægt hlýjum loftstraumum frá Bretlandseyjum og
Norðvestur-Evrópu. En hvort hugsanlegt er, að hér hafi orðið alveg
eins heitt og nú, skal ósagt látið að sinni.
Rannsóknir Jóhannesar Áskelssonar, Guðmundar Kjartanssonar
og fleiri hafa leitt í ljós, að í sjávarseti á Suðurlandsundirlendinu
finnast allt upp í 70—75 m hæð skeljar tegunda, sem bera vott um
tiltölulega hlýjan sjó. Ekki hafa þó enn, mér vitanlega, fundizt þar
neinar tegundir, sem ekki er enn að finna allt í kringum landið.
Vart hefur sjór staðið liátt á Suðurlandsundirlendinu eftir að
Suðurnesin voru risin liærra úr sjó en þau nú eru, og líklegast að
sjávarstaða hafi verið orðin svipuð þar og hún nú er þegar fyrir
9000 árum. Eru þessar skeljaleifar því eldri en 9000 ára og gildir
því sama um þær og skeljar við Rauðhól, að þær eru annaðhvort
tilkomnar rétt upp úr yngra holtasóleyjarskeiði eða á Alleröd-
skeiði. Einnig verður nú að taka að nýju til ígrundunar aldur-
inn á malarhjöllum þeim, sem eru í 40—50 m hæð víða um land.
Ég hef áður, í ritgerðinni Laxárgljúfur and Laxárhraun, sýnt fram
á, að þeir væru eldri en almennt væri talið og talið þá frá yngra
holtasóleyjarskeiði. Aldursákvörðunin á Seltjarnarmónum sker
úr um það, að þeir eru a. m. k. ekki yngri en ég hef talið þá og
bendir fremur til þess, að þeir séu eitthvað eldri. í því sambandi
er þess að geta, að P. Bout telur líklegt, að þessir malarhjallar séu
myndaðir á skeiði með mikilli jöklabráðnun og miklu vatnsrennsli
jökulánna (Bout 1951) og gætu þeir því hugsanlega hafa myndazt á
Alleröd-skeiði. Rannsókn G. G. Bárðarsonar á skeljalögum í Borg-
arfirði virðist mér einnig geta bent til hins sama. Sú tiltölulega