Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 44
200
NÁTTÚK.UFRÆÐIN GURINN
þessar eru örsmáar. Stærri tegundirnar aðeins 100—300 u á lengd,
og þær allra stærstu geta náð því að verða 0.5 mm á lengd. Við
rannsóknir og ákvarðanir á þessum jurtum verður því að nota smá-
sjár með stækkun, a. m. k. 800—1000 faldri. Nafn sitt hafa þessir
þörungar fengið af því, að þeir mynda um sig kísilskel. Eftir útliti
SN/Ð (SECT/ONJA
Mynd 1. Línurit er sýnir breytingar á kísilþörungaflórunni í Seltjarnarmónum.
Diagram showing the occurrence of diatoms in Seltjörn.
kísilskeljanna, sem oft eru mjög fallegar, eru þörungarnir ákvarðaðir.
Sumar tegundir kísilþörunga lifa aðeins í söltu vatni (sjó), aðrar
aðeins í ósöltu vatni og enn aðrir í lítið eitt söltu vatni. Nokkrar
tegundir geta líka lifað í mjög mismunandi vatni og verða því
ekki notaðar við athuganir eins og þær, sem hér um ræðir. I mýrum
á íslandi er mjög mikið um kísilþörunga.
Hér er rúmsins vegna ekki hægt að lýsa þessum jurtum nánar
eða gera grein fyrir rannsóknum á þeim. Ég vona að geta síðar
sent Náttúrufræðingnum myndir af nokkrum fleiri kísilþörungum,
sem ég hef fundið í fjörumó á fslandi. Loks skal þess getið, að dansk-
ur sérfræðingur, Ernst Östrup, hefur rannsakað mjög rækilega kís-
ilþörunga frá íslandi, og er árangur þeirra rannsókna að finna