Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 46

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 46
202 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í ósöltu vatni og 4% þörunga, sem bezt kunna við sig í lítið eitt söltu vatni. Mjög fljótlega fellur tala saltvatnsþörunganna niður í 8% (sbr. línuritið) og nokkru ofar í sniðinu fer tala þeirra niður í 4%, og þannig er það, að heita má, gegnum allt sniðið. Það er nær eingöngu þörungurinn Rhopalodia musculus, sem þannig kemur 3. mynd. Kísilþörungaflóran í Seltjarnarmónum. Stækkun 450 x • — Diatoms from the peat in Seltjöm. x 450. — Ljósm. Jón Jónsson. fyrir gegnum allt jarðvegssniðið. Þessi þörungur er talinn meðal saltvatnsþörunga, en liann getur líka lifað í nær ósöltu vatni. Það er auðsætt, að maður verður að reikna með einstaka saltvatnsþör- ung í mýrum, sem liggja alveg við sjó. Sömuleiðis má finna í sjón- um allmikið af kísilþiirungum, sem lif'a í ósöltu vatni, og hafa þeir borizt þangað með lækjum og ám. Ég gat þess áðan, að Seltjörn hefði verið algerlega slitin úr tengslum við hafið, þegar mómyndunin hófst. Þessa skoðun byggi ég á því, að á flæðiengjum, eins og t. d. við Borgarvog í Borgarfirði,

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.