Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 51
ÍSLENZKIR FUGLAR XIV
207
Iivítai' á vöngum, neðan við svörtu kollhettuna, og hvítar á yfir-
gumpi. Yfir- og undirstélþökur eru livítar. Stélfjaðrirnar eru einnig
hvítar nema 2—3 yztu fjaðrirnar hvorum megin, sem eru meira eða
rninna gráar á útfönum. Yzta handflugfjöður er næstum svört á
útfön, og allar eru handflugfjaðrirnar meira eða minna hvítar á
innfönum, en hvíti liturinn minnkar eftir því sem innar dregur.
Armflugfjaðrir eru hvítar í oddinn og næstum alhvítar á innfön-
um. Lengstu axlarfjaðrirnar eru livítyddar. Nefið er blóðrautt, efri
skoltur stundum grásvartur í bláoddinn. Fætur eru hárauðir, klær
mósvartar. Lithimna augans er dökkbrún. — í vetrarbúningi er
krían allivít á liálsi, bringu og kviði. Ennfremur er hún hvít á
enni og aftur fyrir augu, en mósvört á aftanverðum kolli og hnakka.
í kringum augun eru dökkar írur. Nef og fætur er hvort tveggja
svart, stundum þó með dálítið rauðleitum blæ. Að öðru leyti er
enginn munur á sumar- og vetrarbúningi.
Dúnungar eru gulbrúnir (stundum ljósgráir) að ofan með all-
þéttum, svörtum dílum eða flikrum. Á bringu og kviði eru þeir
hvítir, en grásvartir á hálsi, kverk og kringum nefrót. Þó er oftast
hvítur eða Ijósleitur smáblettur á kverk við rót neðra skolts. Nefið
er ljósrauðbleikt, svart í oddinn og með hvítan eggnadd. Fætur
eru ljósrauðbleikir og klær grásvartar eða gráar. Á einstaka unga
er nefið hvítgrátt og fætur næstum hvítir. — Fleygir ungar líkjast
talsvert fullorðnum fuglum í vetrarbúningi, en axlar- og herða-
fjaðrir eru þó með dökk- eða gulbrúnum fjaðrajöðrum, og smá-
þökur á yf’irvæng eru dökkgráar. Að neðan eru þeir líka oft með
móleitum flikrum, einkum á kverk og hálsi. Ungarnir hafa að
nokkru leyti búningaskipti á tímabilinu ágúst—nóvember, og líkj-
ast eftir það enn rneir fullorðnum fuglum í vetrarbúningi. Þessi
búningaskipti ná þó ekki nema til nokkurs hluta af kroppfiðrinu,
en á tímabilinu febrúar—júní skipta þeir alveg um búning og klæð-
ast þá 1. sumarbúningi. í þeim búningi er vart liægt að þekkja
ungfuglana frá fullorðnum fuglum í vetrarbúningi. Þó eru smá-
þökur á yfirvæng dekkri og stélið yfirleitt styttra og margar stél-
fjaðranna meira eða minna gráar.
Ekki er vitað með vissu, hvort krían klæðist búningi fullorðinna
fugla þegar á 2. sumri, og það er lieldur ekki vitað með vissu, hve-
nær hún verður kynþroska. Sumir ætla, að hún verði kynþroska
ársgömul, en það getur varla verið rétt. Að vísu sjást stundum