Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 58

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 58
212 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN stökum vörpum, jafnvel þótt tiltölulega stutt sé á milli þeirra. Á stöku stað hefst varpið stundum seint í maí, ef tíð er hagstæð, en á öðrum stöðum getur það dregist þangað til síðari hluta júní. Algeng- ast mun þó vera, að varpið hefjist ekki fyrir alvöru fyrr en um viku af júní, og það stendur venjulega sem hæst um eða upp úr miðjum júní. Oft misferst allmikið af eggjum, og auk þess eru eggin víða tekin, og leiðir það til þess, að fuglinn verpur aftur, jafnvel oftar en einu sinni, og í mörgum vörpum má því finna óunguð egg alveg fram í júlílok, auk unga á ýmsum aldri. Ungarnir drepast oft unn- vörjmm, einkum nýklaktir ungar og ungar, sem eru um það bil að verða fleygir. Aðalorsakir að ungadauðanum rnunu vera átuskortur og köld og vætusöm tíð, en margt fleira kemur hér einnig til greina. Sum ár kveður svo rannnt að ungadauðanum, að aðeins fáir ungar komast á legg í stórum vörpum. Það má teljast nokkurn veginn öruggt, að hér fari fyrstu kríurnar að leita til hafs og suður á bóginn þegar upp úr miðjum júlí. Ágúst er þó aðalbrottfarartími kríunnar hér og um mánaðamótin ágúst- september er krían að mestu farin og vörpin auð og yfirgefin. Fram- an af september er þó enn strjálingur af kríu nreð ströndunr fram, og einstaka eftirlegukindur sjást stundum fram í byrjun október. Hér að framan hefur þegar verið rætt um ferðir og vetrarheimkynni kríunnar og má telja víst, að það, sem þar var sagt, gildi einnig um íslenzkar kríur. Að vísu lrafa aðeins tvær merktar, íslenzkar kríur náðst erlendis. Önnur þeirra náðist við strönd Belgíu að vorlagi, og hefur liún því verið á norðurleið, en hin náðist í september í Nígeríu á vesturströnd Afríku, og hefur hún bersýnilega verið á suðurleið. Sú síðarnefnda hafði verið merkt ungi á Grímsstöðum við Mývatn, og var hún 21 árs gömul, þegar hún náðist. Aftur á móti hafa um 50 merktar, íslenzkar kríur náðst einu eða fleiri árurn eftir merkingu á sama stað og þær voru merktar. Þessar endurheimtur bera glöggt vitni um átthagatryggð kríunnar og veita auk þess nokkra vitneskju um, Iive gömul hún getur orðið. Af 30 kríum, sem merktar voru fullorðnar og hafa síðan náðst á sama stað og þær voru merktar, náðust 12 einu ári eftir merkingu, 8 tveimur árum el'tir merkingu, 4 þrenrur árum eftir merkingu, 1 sjö árum eftir merkingu, 3 átta árum eftir merkingu, 1 tólf árum eftir merkingu og 1 fimmtán árum eftir merkingu. Af 19 krfum, sem merktar voru ungar og hafa síðan náðst á sama stað og þær voru merktar, voru 3 þriggja ára, 1 fjögurra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.