Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 64

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 64
Sitt af hverju Technetium. Árið 1871, er Mendeljefí hafði skipað frumefnunum í kerfi og flokkað jrau eftir skyldleika, voru í kerfi hans nokkrar eyður, sem þá urðu ekki fylltar, vegna jress að frumefnin, er Jrar áttu að vera, voru ennþá ófundin. í trausti Jress, að forsendur þær, sem kerfið byggist á, væru réttar, var hafin leit að þessum efnum. Af stöðu Jjeirra í kerfinu mátti margt ráða um eiginleika þeirra og hvar þau væri helzt að finna. I.eið heldur ekki á löngu Jjar til Jjau komu í leitirnar, hvert af öðru, nr. 31, gallium 1875, nr. 21, scandium 1879, nr. 32, germanium 1886 o. s. frv. í þeirri röð kerfisins, sem hefst á rnangan, hafði vantað tvö frum- efni, nr. 43 og 75. Annað þeirra (nr. 75) fannst árið 1925 og var það nefnt rheníum. Samtímis fundust við litrófsrannsóknir merki þess, að til væri einnig frumefnið nr. 43, og var því þá gefið nafnið masúríum. Ekki tókst þó að finna neitt mælanlegt magn af því í náttúrunni. I.oks var það árið 1937 að það tókst að framleiða þetta frumefni. Var Jjað gert með því að skjóta deuterónum á molybden. Til skýringar skal þess getið, að deuteróna er samsett af einni pró- tónu og einni neutrónu og er hún Jjví helmingi þyngri en vatns- efniskjarninn, sem er aðeins ein prótóna. Molybden er frumefni nr. 42 í kerfi Mendeljeffs og Jjví næst á undan hinu nýja frumefni, nr. 43. Þar sem frumefni þetta var Jjannig framleitt á tæknilegan liátt, en var ekki finnanlegt í náttúrunni, var Jjví nú gel'ið nafnið technetíum (Tc). Ef menn hefðu orðið að láta sér nægja það litla magn af technet- íum, sem hægt var að framleiða á þennan hátt, hefði saga Jjessa frumefnis sennilega ekki orðið lengri. En það kom í ljós síðar meir við rannsóknir á þeinr efnum, er mynclast við klofnun á úraníum í úranhlaða, að 6% þeirra var technetíum. Það varð því unnt að gera ítarlegar tilraunir með Jjetta nýja frumefni, og kom bráðlega í Ijós, að Jjað hafði vissa sérkennilega eiginleika til að bera. í fyrsta lagi reyndist það geta hindrað málmátu (corrosion) marglalt bet- ur en þau efni, er áður höfðu bezt reynst til þeirra hluta. f öðru

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.