Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 42
32
NÁT T Ú RU F RÆ ÐINGURINN
Jón Jónsson jarðfræðingur hefur líklega komið oftar að Laka-
gígum en aðrir jarðfræðingar, því hann smalaði svæðið í göngum
á unglingsárum fyrir 1930 og hefur komið þangað nokkrum sinn-
um síðan.
Pálmi Hannesson kannaði Lakagíga snemma í ágúst 1937 ásamt
m. a. Steindóri Steindórssyni, Sigurði Jónssyni frá Brún og Finni
jónssyni málara. Aldrei birti Pálmi þó neitt um Lakagíga, en kunni
margt frá þeim að segja og það málverk af gígunum, sem hangir í
Listasafni ríkisins, málaði Finnur í þessari ferð.
Ekki veit ég aðra íslenzka jarðfræðinga hafa kannað Lakagíga en
þá, sem þegar eru nefndir, og samanlagt munu jarðfræðingar, er-
lendir og innlendir, ekki hafa haft mánaðardvöl á þeim slóðum,
og vantar því eðlilega mikið á, að þessi mikla gígaröð sé könnuð
svo sem skyldi. Það, sem hér fer á eftir, er einskonar rammi um
þær ljósmyndir, sem hér eru birtar. Skal þá fyrst rakin saga Skaft-
árelda í stuttu máli.
Annáll sá, sem hér fer á eftir, er dreginn saman úr áður nefndu
eldriti síra Jóns Steingrímssonar og úr þeirri skýrslu (hér á eftir
merkt B): Einföld og sönn frdsaga um jarðeldshlaupið í Skaft.afells-
sýslu árið 1783, sem samin var af séra Jóni og Sigurði Ólafssyni
klausturhaldara og prentuð er í S. t. s. fsl. IV, bls. 58—69. Til glöggv-
unar á rennsli hraunsins er lesendum ráðlagt að hafa hliðsjón af
kortunum, sem hér eru birt sem 1. og 2. mynd.
1783 ANNÁLL SKAFTÁRELDA
Júní 1.-8. Snarpar og tíðar jarðhræringar, er finnast í öllum
sveitum frá Mýrdal austur í Öræfi.
8. Hvítasunnudagur. Svartan mökk dregur upp af norðri
um dagmálabil. Sandmökk leggur yfir Síðu og nokk-
uð af Fljótshverfinu, svo að sporrækt verður. í ösk-
unni er nokkuð af hraunþráðum (Pele liári). Mökkn-
um léttir þó brátt frá fyrir landsunnan kalda og helzt
sú vindátt næstu daga svo að gosmöl berst aðallega til
vesturs og útnorðurs.
2. mynd. Skaftáreldahraun. Kortið er byggt á jarðfræðikorti Guðm. Kjartans-
sonar og amerískum flugmyndum. — The Lakagígar lava flow. Map based on
G. Kjartansson’s Geological map of Iceland, sheet 6, 1:230000 and on American
aerial photos. — (Ath. Skálmabæjarhraun er misritun fyrir Skálmarbæjarhraun).