Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 79
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
65
Á íslenzka landgrunninu hefur lítið sem ekkert verið unnið að
beinum straummælingum. Höfundur þessarar greinar kann að
nefna mælingar, sem danskir vísindamenn gerðu í mynni Faxaflóa
í júní 1924 (2). Botndýpi á athugunarstað var um 90 m, en mæling-
arnar voru gerðar í 25 m dýpi, og voru þær alls 6 á hálfum sólar-
hring. Niðurstöður voru þær, að hins stöðuga hafstraums gætti lítið
á staðnum, en fallstraumar voru töluverðir, með um 18cm/sek. há-
markshraða í N 54°V á sama tíma og háflóð var í Reykjavík. All-
ýtarlegar athuganir á yfirborðsstraumum á landgrunninu sunnan
íslands voru gerðar í febrúar 1960 á þýzka hafrannsóknaskipinu
„Anton Dohrn“ (3). Niðurstöður mælinganna sýndu, að hafstraumar
í yfirborði á þessum slóðum fara nær eingöngu eftir vindátt, þ. e.
yfirborðsstraumurinn er vindrek. Bendir það til þess, að stöðugra
hafstrauma í yfirborði gæti mjög lítið á þessu svæði. Að lokum
skal svo geta þess, að á vegum dönsku, ensku og íslenzku sjómæl-
inganna hafa verið gerðar athuganir á yfirborðsstraumum víðs vegar
við strendur landsins.
III Mælingar í Faxaflóa í ágúst 1966
Hér á eftir verður gerð grein fyrir beinurn straummælingum í
Faxaflóa í ágúst 1966. Mælingarnar eru liður í umfangsmiklum
rannsóknum í Faxaflóa, sem gerðar voru á tímabilinu febrúar 1966
til marz 1967 á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Straummæl-
ingarnar voru framkvæmdar á varðskipinu „Maríu Júlíu“, (skip-
herra Helgi Hallvarðsson) í suðaustanverðum Faxaflóa (staðsetn.:
64°14'N; 22°13'W) í 36 stundir samfleytt, í 20 og 50 metra dýpi,
alls 72 athuganir í hvoru dýpi. Botndýpi var 61 metri og hagar
þannig til þarna, að staðurinn er í ál, sem gengur úr djúpi Faxaflóa
inn að Hvalíirði og Kollafirði. Áll þessi nefnist Kambsleira (1.
mynd).
Höfundur vill þakka Geir Magnússyni fyrir veitta aðstoð, en hann
á veg og vanda af útreikningum og uppdráttum þessarar ritgerðar.
a. Tæki og áhöld
Við mælingar þær, sem hér um ræðir, var notaður straummælir,
sem kenndur er við höfund hans, sænska eðlis- og haffræðinginn