Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 100
86
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
austan Vagnbrekku. Skömmu síðar sáum við tvo hvinandarblika
með fimm húsandarblikum innarlega á Neslandavík. Daginn eftir
(19. júní) sáu Arni Waag mjólkurfræðingur og lleiri tvo hvin-
andarblika í húsandahóp á Neslandavík skammt frá landi. Allir
þessir blikar voru enn í fullum skrúðbúningi.
Sogið, 29. desember 1963. Hinn 29. desember 1963 sá Árni Waag
hvinendur á Sogi sem hér segir: Einn blika í húsandahóp á Álfta-
vatni. Tvo hvinandarblika á Sogi skammt neðan Úlfljótsvatns, voru
þeir þar með 6 kvenfuglum eða ungfuglum en húsandarblikar
hvergi í nánd. Að sögn Árna sýndu þessir tveir blikar mikil frygðar-
látbrögð, köfuðu undir einn kvenfuglinn, syntu hálfir í kafi og
reigðu hausinn aftur á bak er þeir nálguðust hvor annan. Loks var
hvinandarbliki ásamt 8 kvenfuglum eða ungfuglum á Úlfljótsvatni
skammt frá Efrafalli, engir húsandarblikar sáust á þessum stað.
Laxá við Helluvað, Mývatnssveit, 30. mai 1964. Hinn 30. maí
1964 sá Jón B. Sigurðsson hvinandarblika í húsandahóp á Laxá við
Helluvað. Virtist Hlikí þessi ekki fylgja neinum sérstökum kvenfugli.
Mývatn, 2. júní 1964. I bréli til mín dags. I. 9. 1964 segist brezki
fuglafræðingurinn P. A. D. Hollom hafði séð 3 veturgamla hvin-
andarblika ásamt ungum kvenfugli á Mývatni (eftir lýsingu að
dæma við Höfða) 2. júní 1964. Lýsir hann blikunum mjög nákvæm-
lega. Kvenfuglinn var greinilega áhangandi þessum fuglum og er
því hugsanlegt að þar hafi einnig verið um hvinönd að ræða.
Vogar, Mývatnssveil, 26.-29. desember 1964. f bréfi til mín dags.
14. 8. 1965 segir sænski fuglafræðingurinn Sven-Axel Bengtson að
hann hafi séð einn hvinandarblika á Mývatni hjá Vogum dagana
26., 27. og 29. 12. 1964. Telur Bengtson sennilegt að hér hafi verið
um sama fuglinn að ræða alla dagana. Þessi bliki var óparaður en
té)k stundum þátt í biðilsleikjum ásamt 3—8 húsöndum.
Sogið, 27. desember 1964. Hinn 27. 12. 1964 sá Árni Waag tvo
hvinandarblika í húsandahópum á Úlfljótsvatni. Sama dag sá Árni
einn blika með kvenfugli á austanverðu Álftavatni. Þetta par var
eitt sér og flugu fuglarnir saman að vesturbakka vatnsins.