Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 17
NÁTTÚ RU FRÆÐIN GURINN
159
Það er því ekki liægt að útiloka ofveiði sem eina ai orsökum iækk-
unarinnar. Hlutiall kálfa var miklu lægxa sumarið 1970 en hin
fyrri ár, eða innan við 19% af stofninum. Bendir þetta til þess,
að dýrin hafi átt við meira harðrétti að búa veturinn 1969 til 1970
en árin á undan. En fengitími hreindýra er á haustin, og kvígurnar
ganga með allan veturinn, eins og kúnnugt er, og er því líklegt,
að léleg vetrarbeit komi lram í miklum vanhöldum á fóstrúm eða
kállum. læleg beitarskilyrði að vetrinum gætu í þessu tilfelli
stafað annað livort af erfiðum snjóalögum (áfreðum), ofbeit, eða
hvoru tveggja. Ef um ofbeit er að ræða, mætti búast við áframhald-
andi fækkun dýranna, og verður fróðlegt að sjá, hver stærð stofns-
in verður sumarið 1971, en sem kunnugt er voru veiðar ekki
leyfðar 1970.
Samkvæmt þeim takmörkuðu upplýsingum, sem nú eru fyrir
hendi, er fremur ósennilegt, að veiðar, eins og þær hafa farið fram
hin síðari ár, hafi úrslitaáhrif á fækkun hreindýrastofnsins. Árleg
veiði, sem næmi um helmingi viðkomunnar ár hvert, ætti ekki að
hafa nein áhrif til fækkunar, og sennilega jryrfti að veiða allmiklu
meira, ef halda ætti stofninum nokkurn veginn jöfnum. Gera má
ráð fyrir, að beitarskilyrði að vetrinum geti hvenær sem er valdið
mikilli fækkun dýranna, og sú fækkun yrði því stórkostlegri sem
dýrin eru fleiri. Virðist því hyggilegast að takmarka hreindýra-
stofninn við einhvern hæfilegan hámarksfjölda, e.t.v. eitthvað ná-
lægt því sem hann hefur verið síðustu árin, með árlegum veiðum.
Dreifing hreindýranna
Á mynd 1 og töflu 4 er sýnd dreiling hreindýranna á Austurlandi
árin 1965-1969.
Tölurnar sýna aðeins dreifinguna við talningu hvert ár, eða á
tveim fyrstu vikum júlímánaðar. Hreindýrin rása hins vegar mikið
og skipta oft um dvalarstaði, m.a. eftir árstíma, tíma sólarhrings
og veðurfari, sem þau eru mjög næm fyrir. Þar sem þau eru jafn-
framt dæmigerð hópdýr, geta orðið miklar og snöggar breytingar
á dreifingu þeirra um landið.
Engu að síður má telja, að ofangreindar tölur gefi allgóða hug-
mynd um dvalarstaði hreindýranna, a.m.k. á tímabilinu maí-
september. 1 Ijós kemur, að 80—90% af fullorðnum dýrum og kálf-