Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 45

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 45
NÁTTÚ RU FR.'KÐI N G U R 1 N N 187 Unnsteinn Stefánsson: Fáeinar athuganir á efnafræði Mývatns sumarið 1969 Inngangur. Frá því að Vatnamælingar Orkumálastofnunarinnar hófust árið 1947 hafa verið gerðar skipulagðar og kerfisbundnar mælingar á rennsli fallvatna og dýpi stöðuvatna hér á landi undir stjórn Sigurjóns Rists. Ern slíkar athuganir ómetanleg nndirstaða nndir allar frekari vatnarannsóknir. Mjög litlar rannsóknir hafa aftur á móti verið gerðar á efnafræði íslenzkra stöðuvatna, ef frá eru taldar örláar athuganir, sem undirritaður framkvæmdi fyrir nokkrum ár- um í samvinnu við veiðimálastjóra, Þór Guðjónsson. Frekari rann- sóknir á þessn sviði eru mjög aðkallandi, ekki aðeins Irá fræðilegu sjónarmiði heldur einnig í hagnýtum tilgangi. Þekking á helztu þáttum efna- og eðlisfræði stöðuvatna og fallvatna er nauðsynleg til þess að geta skilgreint eðlisástand og framleiðslugetu þeirra og er })ví forsenda ýmissa líffræðirannsókna. F.fna- og orkubúskapnr einstakra vatna er einnig mikilvægnr liður í sambandi við fiski- rækt, sem ætla má, að eigi sér mikla framtíð hér á landi. Mývatn er sennilega meðal gróðursælustu og auðugustu stöðu- vatna hér á landi miðað við flatarmál. Sem kunnugt er, hefur silungsveiði ávallt verið mikil í vatninu og reynzt Mývatnsbænd- um drjúg búbót. í líffræðilegu tilliti er Mývatn mjög áhuga- vert. Lífsskilyrði eru þar hin ákjósanlegustu og dýralíf fjölbreytt. Mývatn er sannkölluð paradís áhugamanna um fuglaskoðun og býður auk þess upp á fjölbreytileg rannsóknaverkefni. í byrjun þessarar aldar gerðu þeir Ostenfeld og Wesenberg-Lund (1906) samanburðarrannsóknir á svil’i í Mývatni og Þingvallavatni. Sumarið 1923 gerði Poulsen (1924) nokkrar athuganir á dýralífi Mývatns og Lamby (1941) á árunum 1930—1934. Dr. Finnur Guðmundsson hóf líffræðilegar rannsóknir á vatninu árið 1939 á

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.