Náttúrufræðingurinn - 1972, Qupperneq 14
92
NÁTTÚRUFRÆÐ I N GU RIN N
Sprengigígarnir eru samanlagt 2 km á lengd og grípa hver í annan.
Breiddin er um 500 m. Um 20 m háir rimar úr lagskiptri gjósku eru
austan við gígana, en vestan megin aðeins þunnir kleprar, hraun-
kúlur og bert móbergið, sem þeir sprungu upp í gegnum. Hefur
gjóskuna frá þessu gosi augljóslega borið austur og er Jress að vænta,
að hún myndi dávænt öskulag sunnan undir Torfajökli.
Flestum öðrum súrum og ísúrum hraunum á Torfajökulssvæðinu
hefur fylgt vikur- og öskugos, sem ávallt hefur verið undanfari
liraungossins. Frá eldstöðvum við Frostastaðavatn er ættað þrískipt
vikur- og öskulag (mynd Illa). Þrískiptingu lagsins er þannig farið,
að það byrjar með grófum súrum vikri, síðan tekur við basaltgjall og
loks blandaður vikur efst, J)ar sem hvítur vikur og svart gjall er brætt
saman í einum klumpi. Upptök Jaessa lags eru í nyrztu uppvörpum
Dómadalshrauns. Þar virðist atburðarásin hafa verið á ])á leið, að
gosið hafi byrjað í nyrzta uppvarpinu með súrum vikri, sem hlóð upp
heilmikinn bing austan við uppvarpið, vestanhallt í lágum móbergs-
hrygg. Á eftir fylgdi súrt hraungos úr sama uppvarpi. Þetta hraun
liggur eins og kögur meðfram austurjaðrinum á Dómadalshrauni.
Áður en þetta hraun var fullrunnið, hefur nýtt uppvarp byrjað að
gjósa lítið eitt suðvestar. Þar hefur í byrjun komið upp basalt og verið
áköf strókavirkni. Er allt svæðið næst austan við uppvarpið húðað
samrunnum hraunkleprum. Fjær er laust basaltgjall og vikur. Á eftir
basaltinu hefur komið þarna upp hið eiginlega Dómadalshraun, sem
er langstærst súru smáhraunanna á þessu svæði. Hraunið er blandað
að samsetningu (Walker 1964) eins og vikurinn í efsta þriðjungi þessa
einkennilega öskulags. Þegar horft er yfir svæðið í kringum Grákollu,
sést J)etta mislita öskulag eins og árhringir utan við vindblásinn koll-
inn á smáhólum og öldum. Enn hefur útbreiðsla lagsins lítið verið
rannsökuð, en hún er aðallega til austurs, og Jiykktin er mest milli
Dómadalshrauns og Tjörfafells. í öskulagasniðum Sigurðar Þórarins-
sonar (1968) hefur lag Jjetta, eða hlutar J^ess óverðskiddað fengið tákn-
ið Gr, sem stendur fyrir Grákollu. Um aldur er ókunnugt nema
livað það er forsögulegt, líklega þó ekki nema 2000—3000 ára.
Öskulag það, sem Sigurður Þórarinsson nefnir hr, hefur mynd-
azt í upphafi Hrafntinnuhraunsgossins í kringum 1170 (Sig. Þórarins-
son 1968). Við upptök syðstu hraunanna eru Jíykkar dyngjur af
ljósgráum vikri, en öskuna hefur borið norður og vestur, svo sem
greint er í Heklueldum og sýnt er á 5. mynd. Útbreiðslukortið, sem
])ar er sýnt, teiknaði Sigurður Þórarinsson og lét mér góðfúslega í té.