Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 16
94 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Þórarinsson 1967) og eldstöðvarnar í framlialdi þeirrar gossprnngu til suðvesturs þ. á m. Ljótipollur, Norðurnámshraun, Námshraun og Laugahraun eru frá svipuðum eða sama tíma (Sig. Þórarinsson 1968). Öskulög ofan á og undir Laugahrauni benda til, að það sé álíka gam- alt og landnámslagið. Hrafntinnuskerjahraunin þrjú eru í beinu áframhaldi þessarar gossprungu til suðvesturs, og líklega frá sama tíma. Yfirborð Hrafntinnuskerja er að vísu ólíkt ellilegra en t. d. Laugahrauns, þar sem jökull lá á |)eim fram undir síðustu aldamót, og eru leifar hans enn við líði. Nafngiftin er frá þeim tíma, er hrafn- tinnan myndaði sker upp úr jöklinum. Undir stærsta Hrafntinnuskerjahrauninu sunnan megin sést í gilskorningum 20—30 m þykkt súrt vikurlag, sem örugglega á sér sömu upptök og hraunið. Vikurinn er lagskiptur (mynd III b) og skiptast þar á gróf og fíngerð lög, sum hátt í rnetra á þykkt með haus- stórum vikurstykkjum og grjótrusli, sem aðallega er líparítbrot úr veggjum gígrásarinnar. Lögunum hallar jafnt niður undan jaðri mið- hraunsins, og lagið í heild þynnist ört í átt að Ljósártungum. í þessu vikurlagi er landnámslagið líklega fólgið. Hins vegar vantar nánast dökka hlutann og verður naumast annað ályktað en hann sé ættaður frá öðrum stað á gossprungunni og þá væntanlega, þar sem gaus andesíti. Beinist athyglin þá að eldstöðvunum við Laufafell, og ber það tvennt til, að dökki hluti lagsins mun hvað J:>ykkastur einmitt á því svæði (Sig. Þórarinsson 1968) og eins hitt, að andesít hefur hvergi komið upp á gossprungunni milli Hrafntinnuskerja og Veiðivatna. Þegar litið er á hliðrun þá, sem verður á nútíma gossprungum nærri suðurjaðri líparítsvæðisins (6. mynd), kæmi ekki á óvart að finna framhald Hrafntinnuskerja — Veiðivatnagossprungunnar vestan við Laufafell. Ég tel næstum öruggt, að upptök dökka hluta landnáms- lagsins séu nyrzt á gossvæðinu við Laufafell. Þar er mikil gígskál um 2 km á lengd, sporöskjulöguð með mestri breidd um 700 m (4. mynd). Rimar hennar eru gleggstir að vestanverðu og hæð þeirra nokkrir tugir metra, þar sem hæst er. Að austanverðu er riminn miklu lægri og slitróttari. Greinilegt er af misjafnri hæð rimans og bugðóttnm útlínum, að í stóra gígnum hafa verið nokkur sjálfstæð uppvörp. í gjóskunni, sem myndar gígrimann, er vikur og gjall úr feldspat- og pyroxendílóttu andesíti. Er það mjög auðkennilegt, þar sem annað andesít á þessum slóðum er ólivíndílótt. Pyroxen- og feldspatdílar auðkenna einnig dökka hluta landnámslagsins. Auk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.