Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 33
N ÁTT Ú RU F RÆÐINGURINN
109
2. mynd. Skógareldar, hlekkur í náttúrlegri keðjn.
vex hérlendis á stöku stað. Skógarnir skýla ekki aðeins öðrum
gróðri og jarðvegi, heldur einnig ríkulegu dýralífi, sem dafnar í
skauti þeirra. Af skógum tertíertímabilsins finnast stórfenglegar
leifar steingervinga í formi viðarsteins af margbreytilegri gerð,
og má sjá sýnishorn þeirra í söfnum víða um lieim. Á einum stað
finnast þannig leifar 27 skóga, er grafizt hafa undir ösku og vikri,
einn af öðrum, í goshrinum tertíertímans, stofnarnir uppréttir
Jáar sem þeir uxu fyrir tugmilljónum ára, og þekur svæði þessara
steinrunnu skóga ekki rninna en 100 ferkílómetra, og liafa Jrar verið
greindar meira en 100 tegundir plantna, m. a. risafura.
Dýralífið dregur mjög að sér athygli ferðamannsins, enda gefast
hvergi í Bandaríkjunum betri tækifæri til að fylgjast með villtum
dýrum en í Yellowstone. F.kki færri en 60 tegundir spendýra eiga
heimkynni innan þjóðgarðsins, bæði stórvaxin og smá. í þessum
hópi eru fágætar tegundir eins og vísundurinn (Bison bison),