Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 30
106 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Hjörleifur Guttormsson: Yellowstone og vandamál þjóðgarða ALDARAFMÆLI Ekki veit ég, hversu margir Bandaríkjamenn líta Yellowstone- þjóðgarðinn augum einu sinni eða oftar á ævinni, en víst er, að hugur margra leitar þangað, og þennan þjóðgarð ber hæst meðal hinna mörgu og gullfallegu svæða, sem Bandaríkjamenn hafa borið gæfu til að lýsa alþjóðareign og reyna að vernda og stjórna þannig, að sem flestir fái notið þeirra án þess að spilla náttúru- farslegum verðmætum. Ástæður fyrir gífurlegum vinsældum og heimsfrægð Yellow- stone eru margþættar. Uppgötvun svæðisins og könnun þess af hvít- um mönnum eftir miðja síðustu öld var dramatískur viðburður og í kjölfarið fylgdi þar stofnun fyrsta þjóðgarðs í heimi með sér- stakri lagasetningu þjóðþingsins og formlegri staðfestingu Grants forseta 1. rnarz 1872. Þannig á þessi þjóðgarður og um leið þjóð- garðshugmyndin aldarafmæli á þessu ári, og þess hefur verið minnzt þar vestra með ýmsum hætti, m. a. er þar haldið 2. heims- þingið um þjóðgarða nú í september um það leyti, sem grein þessi er rituð. Ég átti þess kost fyrir ári að heimsækja nokkra af þjóðgörðum Bandaríkjanna og kynnast þeirri starfsemi, sem þar fer fram. Kom ég þá m. a. í Yellowstone-þjóðgarðinn í áliðnum október og sá nokkrar af furðum hans, þótt hausthret, sem þá gekk yfir, hefti að nokkru för. Hér er ekki hugmyndin að rekja þá ferðasögu að neinu marki, en þar eð við íslendingar erum nú að stíga fyrstu skrefin í stofnun þjóðgarða og hvatinn að baki virðist vera svipaður og hjá stórþjóðinni í vestri, finnst mér ástæða til að nota þetta aldarafmæli þjóðgarða sem tilefni til að vekja máls á nokkrum þátturn varðandi Yellowstone og stefnu í þjóðgarðamálum almennt þar vestra.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.